Donald Trump verður ugglaust ekki forseti Bandaríkjanna áfram.
Sjúkk!
En eitt þarf að skoða vandlega eftir kosningarnar og ekki aðeins Bandaríkjamenn, heldur lýðræðissinnar í öllum löndum, þurfa að draga af því lærdóm.
Donald Trump mun líklega á endanum hljóta nærri 70,3 milljónir atkvæða.
Enginn frambjóðandi nokkurn tíma hefur hlotið jafn mörg atkvæði og hann – nema Joe Biden (blessunarlega).
Þetta er hrollvekjandi niðurstaða fyrir alla þá sem hafa fylgst með því undanfarin ár hve gjörsamlega gjörsamlega gjörsamlega vanhæfur þessi maður er til að stýra lýðræðisríki.
Eftir fjögur ár á valdastóli EYKST fylgi Trumps en minnkar ekki. Það eykst um sjö milljónir atkvæða, ekki síst vegna mun meiri kjörsóknar en áður, en það eykst líka prósentulega.
Árið 2016 fékk Trump 46,1 prósent en nú 47,7 prósent eða þar um bil.
Og hvernig stendur á þessu eftir hamagang, spillingu, endalausar lygar og valdníðslu, vanhæfni, daður við einræðisherra, daður við rasisma, að ekki sé minnsta á skeytingarleysi um líf og limu samborgara sinna eins og birtist í viðbrögðunum við kórónuveirunni?
Eftir allt þetta, þá EYKST fylgi mannsins!
Við getum haft ýmsar skoðanir á bandarísku samfélagi og Bandaríkjamönnum en það er ekki hægt að afgreiða 70 milljónir Bandaríkjanna með því að þeir séu heimskir, vitlausir, fáfróðir, fordómafullir, rasískir og hálffasískir.
En þessum „skýringum“ á fylgi Trumps hefur óspart verið slegið fram á samfélagsmiðlum síðustu dægur og raunar lengur.
Ekkert hefur skort á að fylgismenn Trumps slái líka um sig með sleggjudómum um andstæðinga sína.
Þeir eru verri ef eitthvað er.
En það breytir því ekki að það þarf að skilja hvað gerðist og hvað ræður þessum mikla stuðningi við vanhæfan forseta, ekki fordæma fylgismenn hans afdráttarlaust.
Því það er ekki aðeins óþolandi hrokafullt, heldur gerir engum gagn.
Fyrir ekki mörgum árum hefði sjálfsagt enginn trúað því að Bandaríkin, sem hafa verið rótgróið lýðræðisríki hvað sem líður margvíslegum skavönkum þeirra, myndu fara svo nærri að kjósa aftur yfir sig forseta sem hefði í fjögur ár samfleytt lýst algerri fyrirlitningu á lýðræðislegu stjórnarfari.
Ég trúi því varla enn.
En það sem gat (nærri því) gerst þar með stuðningi 70 milljón manna, það getur gerst víðar.
Þar á meðal hér.
Svo reynum í guðs bænum að skilja þetta.
Athugasemdir