Ráðherrar og þingmenn Vinstri grænna tóku bersýnilega fullan og meðvitaðan þátt í plotti Samtaka atvinnulífsins um að beygja flugfreyjur og rjúfa samstöðu þeirra.
Hlýðnir og prúðir trítluðu VG-liðar í felur og létu ekki ná í sig eftir uppsagnir gærdagsins, svo illa slegnar flugfreyjur mættu sjá að frá þeim væri einskis stuðnings að vænta.
Ekki heyrðist múkk frá neinum í ríkisstjórninni, nema hvað skuggaleiðtogi hennar, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, gaf RÚV reyndar skriflega yfirlýsingu sem auðvitað mátti skilja sem eindregna stuðningsyfirlýsingu við húsbændur hans í Samtökum atvinnulífsins.
Katrín forsætisráðherra? Nei, það náðist ekki í hana.
Þetta var örugglega mjög sniðuglega teflt, þótt ansi væri ónotalegt að horfa upp á af hve mikilli nautn forráðamenn Icelandair niðurlægðu sínar tryggustu flugfreyjur - og ekki síður hve auðveldlega þeir fengu kollega flugfreyjanna, flugmenn, til að gera slíkt hið sama.
Ég reikna með að kampavínið hafi runnið ljúflega niður á skrifstofum SA eftir að plottið gekk upp, og fékk VG ekki örugglega dreitil líka?
Þannig fór nú um þennan verkalýðsflokk VG, en væri nú ekki ráð að hætta að tala um ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og tala bara eins og er um fyrstu ríkisstjórn Samtaka atvinnulífsins?
Athugasemdir