Fólkið sem lést í umferðarslysinu á Vesturlandsvegi á sunnudag hét Finnur Einarsson, 54 ára, og Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir, 53 ára.
Þau voru sambýlisfólk, búsett í Garðabæ, og láta eftir sig fjögur, uppkomin börn.
Finnur og Jóhanna voru á ferðinni á mótorhjóli á Vesturlandsvegi við Kjalarnes, þegar erfitt reyndist að halda stjórn á því vegna galla í nýlögðu malbiki. Á sama tímapunkti var ökumaður á húsbíl á ferðinni. Annar bifhjólamaður, Pétur Halldór Ágústsson, lenti einnig í slysinu og er á batavegi. Þá fór sjúkrabíll út af veginum á sama stað þegar hann kom á vettvang.
Bifhjólasamtökin HOG Chapter Iceland minnast Finns og Jóhönnu í dag. Fram kemur í minningarorðum að þau hafi keypt húsnæði samtakanna og látið endurgjaldslaust félögum sínum í té.
„Kæru félagar, það er með mikilli sorg í hjarta að ég flyt ykkur þær fréttir að félagar okkar í HOG Chapter Iceland, Finnur Einarsson og Jóhanna S. Sigurðardóttir, létust í bifhjólaslysinu á Kjalarnesi síðast liðinn sunnudag. Börnum þeirra og aðstandendum öllum, sem og vinum, vottum við okkar dýpstu samúð. Finnur og Jóhanna voru mjög virk og lögðu mikið af mörkum í starfi Chaptersins, en Finnur tók við varaformennsku um áramótin 2018/2019. Þegar Chapterinn missti síðasta athvarf sitt keyptu þau hjónin húsnæðið í Nethyl sem þau lögðu endurgjaldslaust undir Chapterinn og hefur það verið mikils metið,“ segir í færslu samtakanna. Þar er einnig staðið fyrir söfnun til handa börnum þeirra vegna útfararkostnaðar.
Forstjóri Vegagerðarinnar hefur sagt að malbikið hafi ekki staðist kröfur. Sýni úr því hafa verið send til Svíþjóðar til greiningar. Vegagerðin hefur harmað slysið og sent aðstandendum hinna látnu „dýpstu samúð“. Beðið er niðurstöðu rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Um 40 mínútum áður en slysið varð varaði vegfarandi Kjalnesinga við í íbúahópnum Færð og veður á Kjalarnesi á Facebook. „Varúð nýja malbikið við vigtaplanið er STÓRhættulegt,“ sagði í færslunni.
Vegagerðin segist taka fulla ábyrgð, þótt verktaki hafi séð um verkið. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra hefur fundað með forstjóra Vegagerðarinnar vegna slyssins.
Athugasemdir