Það er svo sem að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um Donald Trump. Allir hafa vafalaust fyrir löngu gert sér grein fyrir hvaða og hvers konar maður þar er á ferð.
Það er hins vegar áhyggjuefni hvernig maður af hans tagi komst í sitt valdamikla embætti. Lýðræðið í Bandaríjunum er langt frá því að vera fullkomið, en það er þó altént tímafrekt og menn skyldu því ætla að þeir, sem augljóslega eru vanhæfir í æðstu embætti, ættu fljótlega að heltast úr lestinni, en í tilfelli Trumps dugði tíminn ekki.
Það sem er þó enn undarlegra og hörmulegra er að úr því þessi óhæfi karl náði í embætti, þá skuli flokksmenn hans að yfirgnæfandi meirihluta styðja hann til áframhaldandi valda. Og jafnvel æðstu menn Repúblikanaflokksins - menn sem vita að Trump er óhæfur - láta sem ekkert sé.
Fyrir fólk í öðrum löndum er það mesta áhyggjuefnið. Því slíkt getur gerst annars staðar líka. Fólk hefur sorglega tilhneigingu til að fylkja sér um Leiðtogann, hversu óhæfur sem hann kann að vera.
Kannski er þetta að breytast vestur í Bandaríkjunum þótt seint sé. Steve Schmidt heitir maður sem hefur verið Repúblikani í áratugi og stutt og unnið fyrir flokkinn með ráðum og dáð. Hann var til dæmis í fararbroddi fyrir kosningabaráttu John McCains til forseta árið 2008.
Schmidt hefur svo sem aldrei verið banginn við að lýsa andúð sinni á Trump, en kannski að sjónarmið hans eigi nú greiðari aðgang að Repúblikönum en áður. Um daginn sagði Schmidt í sjónvarpi:
„Donald Trump er versti forseti sem þetta land hefur nokkru sinni þurft að þola. Og ég nota þessi orð ekki sem einhverja mælskubrellu. Hann er það bara. Og hann er fyrirferðarmikill forseti. Og á þremur stuttum árum hefur hann veikt svo stöðu landsins að það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess hvar við erum nú miðað við hvar við vorum þann dag þegar Barack Obama lét af embætti. Þann dag vorum við mörg full af efasemdum og áhyggjum um hvernig forsetatíð Trumps myndi verða. En nú sitjum við uppi með óviðjafnanlega auðmýkingu landsins og veika stöðu.
Þegar við hlustum á forsetann tala, þá heyrum við hugaróra fáráðlings. Hálfvita. Og ég nota þessi orð ekki sem uppnefni. Ég nota þau [„imbecile“ og „idiot“] vegna þess að þau eru hin einu réttu orð tungumálsins til að lýsa hátterni hans. Framgöngu hans. Gjörðum hans. Við höfum aldrei séð aðra eins vanhæfni, eða þvílíka flónsku í svo tröllauknum mæli nokkrum tíma í sögu þessa lands af hendi einhvers sem verið falið ábyrgðarstarf af nokkru tagi.
Það er með algjörum ólíkindum að þessi maður sé forseti Bandaríkjanna. Þessi svikahrapur frá New York [með] mörg gjaldþrot á bakinu, fallin fyrirtæki, og raunveruleikasjónvarpsþátt sem taldi fólki trú um að hann væri það sem hann var samt aldrei - vel heppnaður kaupsýslumaður.
Jæja, nú er hann forseti Bandaríkjanna og sagðist mundu gera landið okkar voldugt á ný. Og hann hefur kallað yfir okkur dauða, þjáningar og efnahagshrun í alveg ótrúlegu veldi. Og höfum eitt á hreinu. Það er ekki sama sagan í öllum löndum heims. [En þetta er sagan] á þessum stað. Okkar stað. Okkar heimili. Okkar landi. Bandaríkjunum. Við erum í miðju stormsins. Við erum á þeim stað þar sem mest hætta er á að deyja af völdum [Covid-19]. Við erum það land þar sem efnahagshrunið er mest. Og svona er komið fyrir okkur því það situr fífl bak við skrifborðið volduga í Hvíta húsinu.“
Það var CNN sem skrifaði upp orð Schmidts úr viðtali við hann.
Athugasemdir