VG langaði í valdastóla.
Hvað var þá til ráða? Leita að þeim í IKEA eða á Bland.is eins og við hin gerum þegar okkur vantar húsgögn?
Nei, VG vildi betri stóla en það, og frétti að þessir fínu valdastólar væru til sölu uppí Valhöll.
Kannski vinir Katrínar Jakobsdóttur í Sjálfstæðisflokknum hafi sagt henni hvað úrvalið var gott.
Mjúkir og þægilegir, plussið alveg einstaklega hlýlegt viðkomu.
Og Katrín sýndi Svandísi fram á að þetta væru langbestu valdastólarnir.
Það þurfti ekki að sannfæra Steingrím J.
Fáeinir aðrir í flokknum voru ekki alveg eins sannfærðir. Drífa Snædal rauk burt í fússi og vildi ekki éta skít alla daga, sem hún sagði að fælist í því að setjast í þessa stóla í umboði Sjálfstæðisflokknum.
Rósa Björk og sérstaklega Andrés Ingi voru treg í taumi.
En allir hinir létu sér að lokum vel líka. Og fóru að hafa gaman af því að sjá sína menn sitja í valdastólunum við hlið merkilegs fólks í Sjálfstæðisflokknum.
Góðir stólar, hei!
Nú erum við alvöru fólk!
Það gilti einu þótt ekkert - segi og skrifa EKKERT - af því sem ríkisstjórn Katrínar hefur gert sé hótinu lengra til vinstri en Sjálfstæðisflokkurinn getur alltaf auðveldlega fallist á, svo hann haldi nú sínum valdastólum líka.
Ég nenni ekki að rifja upp allan skítinn sem VG hefur hámað í sig með ánægju, hossandi sér í valdastólunum frá Valhöll.
Þetta er orðið svo hversdagslegt.
Samt tókst valdaþjónkun VG enn að koma mér á óvart í dag.
VG - Vinstri græn - flokkur undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur, og Svandís Svavarsdóttir alveg næstráðandi - þessi flokkur beitir sér fyrir því að stöðva athugun á Alþingi á því hvort Kristján Þór Júlíusson sé vanhæfur í ráðherrastóli vegna tengsla sinna við Samherja.
Það er nefnilega það.
VG og Katrín og Svandís og Steingrímur og Kolbeinn og þau hin - vitiði, ég er ekki svo mikill asni að það sé hægt að ljúga því að mér að þessi „niðurstaða“ VG í dag sé neitt annað en þjónkun við Sjálfstæðisflokkinn.
Enn einn skíturinn sem þarf að sporðrenna.
Kannski er lyktin svo góð af plussinu í valdastólunum að hún yfirgnæfir skítalyktina hjá þeim sem þar sitja.
En hana leggur að öðru leyti um allt samfélagið, skítalyktina.
Athugasemdir