Maðurinn sem lést við veiðar í Laxá í Aðaldal í fyrradag hét Árni Björn Jónasson. Árni var 73 ára gamall, verkfræðingur og búsettur í Kópavogi. Árni lætur eftir sig eiginkonu, Guðrúnu Ragnarsdóttur framhaldsskólakennara, þrjú börn og sex barnabörn. Meðal barna Árna er Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis og fyrrverandi ráðherra.
Árni hafði verið við veiði í Laxá en ekki skilað sér til baka að kvöldi 31. maí síðastliðinn. Björgunarsveitir á Norðurlandi og Austurlandi voru kallaðar út til leitar ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fannst Árni um þrjúleytið aðfararnótt 1. júní, látinn.
Guðrún kona Árna setti inn minningarorð um mann sinn á Facebook-síðu sína. „Elsku Árni minn er látinn - hann lést í gær við uppáhaldsiðju sína, urriðaveiði í Laxá í Þingeyjarsýslu. Við fjölskyldan færum veiðifélögunum, björgunarsveitum, lögreglunni og Landhelgisgæslunni okkar innilegustu þakkir.“
Athugasemdir