Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Veitingahluti KEX hostel gjaldþrota - „Sé ekki að neinn skemmtistaður lifi þetta af“

Rekst­ur Kex orð­inn mjög þung­ur eft­ir gjald­þrot WOW og Covid-19 keyrði stað­inn á kaf. Gisti­hlut­inn er ekki far­inn í þrot en stað­an er erf­ið. „Ég sé ekki að neinn skemmti­stað­ur lifi þetta af,“ seg­ir eig­andi Gauks­ins.

Veitingahluti KEX hostel gjaldþrota - „Sé ekki að neinn skemmtistaður lifi þetta af“
Gjaldþrot óhjákvæmilegt Pétur Marteinn, einn eigenda KEX hostel, segir að ekki hafi verið hægt að komast hjá því að veitingahluti staðarins, Sæmundur í sparifötunum, færi í þrot nú þegar kórónaveirufaraldurinn geysar.

Veitingahluti KEX hostel, Sæmundur í sparifötunum, er gjaldþrota og verður ekki endurreistur. Erfiðleikar hafa verið í rekstri staðarins um nokkurt skeið sem náðu svo hámarki eftir að kórónuveirufaraldurinn reið yfir þjóðina. Einn af eigendum KEX óttast að þetta sé aðeins eitt af mörgum gjaldþrotum sem framundan eru í veitingageiranum.

Eigandi skemmtistaðarins Gauksins tekur enn dýpra í árina og segist ekki sjá annað en allir skemmtistaðir verði gjaldþrota, komi ekki til stuðningur frá hinu opinbera. Staðan er sögð svo slæm að fjöldi skemmtistaða séu nú þegar tæknilega gjaldþrota.

Pétur Hafliði Marteinsson, einn eigenda KEX hostel, segir að gjaldþrot Sæmundar í sparifötunum hafi verið óumflýjanlegt. „Það hafa staðið yfir gríðarlegar framkvæmdir, fyrst á Hverfisgötunni og síðan bara allt í kringum okkur á KEX í langan tíma. Það hefur allt verið rifið upp þarna, það var 25 metra hola á bakvið hjá okkur þannig að aðgengi að staðnum hefur verið mjög lélegt. Síðan, með hruni WOW air og með færri ferðamönnum í kjölfar þess hefur reksturinn verið gríðarlega erfiður og það þarf síðan engum að koma á óvart að róðurinn hafi enn þyngst þegar að kórónaveiran mætti á svæðið. Það var tekið á það ráð að loka KEX og það verður ekki afturkvæmt með veitingahlutann, því miður. Hann bara skuldaði of mikið eftir þetta.“

Sárt að fólk missi vinnuna

Pétur segir að gistihlutinn, KEX hostel sjálft, sé ekki farið í þrot en það sé lokað. Hlutabótaleiðin svokallaða hafi verið farin þegar kom að starfsfólki en staðan sé erfið. „Staðan er mjög erfið og þröng og hún var það fyrir. Við vitum ekkert hvenær hægt er að opna aftur, það eru auðvitað engir ferðamenn á landinu. Mann grunar að þetta verði alls ekki fyrsta gjaldþrotið í þessum geira.“ 

„Mann grunar að þetta verði alls ekki fyrsta gjaldþrotið í þessum geira“ 

Pétur minnir þó á að það sem skipti máli sé að takast á við faraldurinn. „Þetta er sorglegt, þetta gjaldþrot, en svona er þetta. Það eru alvarlegri hlutir í gangi á landinu, fólk er veikt og líður illa og það hafa verið dauðsföll. Sárast er að við vorum með fólk í vinnu sem nú hefur misst vinnuna, því miður.“

„Ég get ekki ímyndað mér að neinn skemmtistaður muni standa þetta af sér að óbreyttu,“ segir Starri Hauksson, annar eigenda skemmti- og viðburðastaðarins Gauksins í miðborg Reykjavíkur.

Starri segir að verði ekki brugðist við og komið til móts við skemmtistaði með stuðningi verði þeir allir órekstrarhæfir. Það verði gríðarlega dýrt spaug, vegna þess mikla fjölda fólks sem vinnur í veitingabransanum, vegna listamanna og tæknifólks sem hafa atvinnu af skemmtanahaldi á stöðunum, og vegna mikilvægis staðanna þegar ferðaþjónusta tekur við sér að nýju.

Veitingastaðir einnig í vanda

Staðan er önnur hjá veitingastöðum sem margir hverjir hafa fundið sér farveg með heimsendingum. Þannig segir Bragi Skaftason, einn af eigendum Vínstúkunnar tíu sopa, að þó reksturinn sé erfiður þar hafi heimsendingar á mat gengið vonum framar og séu að fleyta staðnum yfir þá erfiðleika sem samkomubannið sé. Hins vegar eru dæmi um veitingastaði þar sem staða mála sé mjög erfið. Þannig er búið að loka Grillinu á Hótel Sögu, einhverjum sögufrægasta veitingastað landsins, um óákveðinn tíma og þrálátur orðrómur er um að staðurinn verði ekki opnaður aftur. 

„Við erum búin að aflýsa yfir hundrað viðburðum“

Starri Hauksson

Hvað varðar skemmtistaðina er staðan vitanlega sú að þeir eru lokaðir og verða það um fyrirsjáanlega framtíð. „Það var held ég enginn farinn að gera sér neinar vonir um að tilslakanirnar sem voru kynntar á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, og eiga að taka gildi 4. maí, myndu ná yfir skemmtistaði. Það er líka alveg ljóst að það er enginn staður niðri í bæ sem getur boðið upp á skemmtanahald þar sem fjöldatakmarkanir og tveggja metra fjarlægð gildir. Það var búið að bóka talsvert yfir eitthundrað viðburði á Gauknum, langt inn í sumarið. Við erum búin að aflýsa yfir hundrað viðburðum, það er allt í frosti og enginn veit hvað gerist. Það var til dæmis fjöldi af erlendum aðilum sem stóð til að kæmu fram á Gauknum, tónlistarmenn, plötusnúðar og sirkuslistafólk, sem ekki kemur til landsins, auðvitað ekki. Ég reikna ekki með að hægt verði að fara af stað með einhvern rekstur sem nálgast það að vera eðlilegur fyrr en í haust,“ segir Starri sem á og rekur Gaukinn ásamt Sólveigu Johnsen.

Tímasetningin vond eftir vondan vetur

Starri bendir á að tímasetning kórónaveirufaraldursins hafi hitt veitingahúsa- og skemmtistaðaeigendur afar illa fyrir, í ljósi veðurfars mánaðanna á undan. Veður hafi ítrekað verið þannig að veðuraðvaranir hafi verið gefnar út, um helgar og á burðardögum í skemmtistaðarekstri. Starri segir að innkoman hafi því verið lítil þá mánuði. „Fyrstu tveir mánuðir ársins, janúar og febrúar, voru einfaldlega mjög erfiðir og lítil innkoma. Það sem eftir var var svo notað til að greiða starfsfólki laun í marsmánuði. Það eru held ég allir búnir með allan slaka sem mögulega var til staðar.“

„Ég fékk bara kökk í hálsinn við það símtal“

Samtal er yfirstandandi við viðskiptabanka og leigusala, segir Starri, um það hvort og þá hvaða leiðir séu færar í stöðunni, svo hægt verði að hefja rekstur Gauksins að nýju þegar aðgerðir vegna Covid-19 faraldursins verða afstaðnar. „Það veit svo sem enginn hvað kemur út úr því. Við höfum átt frábær samskipti við okkar birgja sem hafa staðið þétt við bakið á okkur með miklum sóma. Við fengum símtöl á fyrstu dögunum í þessu ástandi þar sem haft var samband við okkur og okkur tjáð að það yrði staðið við bakið á okkur. Ég fékk bara kökk í hálsinn við það símtal.“

Starri undrast mjög að ekki hafi verið kynntar neinar aðgerðir til að styðja við fólk sem vinnur í störfum eins og þeim sem tíðkast á skemmtistöðum, í vaktavinnum og oft með takmörkuð réttindi. Í hans huga sé þetta viðkvæmur hópur sem verði að styðja við ef ekki eigi illa að fara. „Ég hef  verulegar áhyggjur af afkomu fólks sem starfar í veitingageiranum. Þetta er þannig að margt fólk er að vinna í tveimur, þremur störfum, í vaktavinnu, og uppsöfnuð réttindi eru mjög mismikil. Ég hef ekki séð aðgerðapakka sem eiga að hjálpa þeim, fólk sem lifir á launaseðli til launaseðils á leigumarkaði. Tíminn líður hratt og við þurfum sem samfélag að finna leiðir til að koma þessu fólki í skjól.“

Listir munu finna sér farveg að mati Starra en kostnaðurinn sem að fjöldagjaldþrot í greininni myndi leiða af sér væri gríðarlegur. „Ég hef ekki áhyggjur af því að listin finni sér ekki leiðir, það mun gerast. En staðirnir sem nú eru í rekstri verða ekki til staðar í þeirri mynd sem þeir eru núna fyrir listina. Það hlýtur því að þurfa að koma til einhver opinber stuðningur við þessa rekstraraðila, mikilvægi þessara staða er svo mikið í menningarlegu tilliti og einnig þegar ferðaþjónustan kemst aftur á fæturna. Ef við gerum ekki neitt, ef ekki kemur til einhver stuðningur, blasir bara við fjöldagjaldþrot í greininni með þeim gríðarlega kostnaði sem því fylgir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
3
Fréttir

Millj­arð­ar kvenna sem passa ekki inn í út­lits­box­ið

Þó svo að hættu­lega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki leng­ur í tísku og að Bridget Jo­nes sé ekki leng­ur tal­in feit, eru út­lit­s­kröf­ur til nú­tíma­kvenna enn óraun­hæf­ar, seg­ir pró­fess­or í fé­lags­sál­fræði. Hún er þó bjart­sýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áð­ur hafi ver­ið kyn­slóð sem er vís­vit­andi að berj­ast gegn því að fólk sé smán­að út af út­liti.“
Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt
8
Viðskipti

Vext­ir þriðj­ungs allra óverð­tryggðra lána til heim­ila lands­ins losna brátt

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar er sagt frá því að meiri­hluti eft­ir­stand­andi óverð­tryggðra lána á föst­um vöxt­um munu koma til end­ur­skoð­un­ar á næstu miss­er­um. Frá og með júlí og til og með ág­úst á næsta ári munu vext­ir losna á óverð­tryggð­um lán­um fyr­ir sam­an­lagt 410 millj­arða króna. Það er rúm­lega þriðj­ung­ur af öll­um óverð­tryggð­um lán­um til heim­ila lands­ins.
Án endurgreiðslunnar hefði útgáfa íslenskra bóka sennilega hrunið
9
Fréttir

Án end­ur­greiðsl­unn­ar hefði út­gáfa ís­lenskra bóka senni­lega hrun­ið

Sal­an á nýj­um bók­um í prent­uðu formi hef­ur dreg­ist mjög mik­ið sam­an og hratt. Sig­þrúð­ur Gunn­ars­dótt­ir, fram­kæmda­stjóri For­lags­ins, tel­ur að án end­ur­greiðsl­unn­ar núna væri stað­an skelfi­leg. Ný­lega var tek­in sam­an skýrsla á veg­um Menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins um áhrif þess­ara laga sem sýni ótví­rætt: „að án end­ur­greiðsl­unn­ar hefði út­gáfa ís­lenskra bóka senni­lega hrun­ið.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
2
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.
Ríkisstjórnin vill gefa kvótann í laxeldinu um aldur og ævi
4
FréttirLaxeldi

Rík­is­stjórn­in vill gefa kvót­ann í lax­eld­inu um ald­ur og ævi

Í frum­varpi mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi er kveð­ið á um að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in í land­inu hafi „ótíma­bund­in“ rekstr­ar­leyfi til að stunda sjókvía­eldi í ís­lensk­um fjörð­um. Hing­að til hafa rekstr­ar­leyf­in ver­ið tíma­bund­in í 16 ár. Með þessu ákvæði munu stjórn­völd á Ís­landi ekki geta bann­að sjókvía­eldi án þess að baka sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
5
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
7
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
9
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
10
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu