Barið að dyrum eldsnemma. Varla nokkuð farið að birta.
Hver er kominn svo snemma?
Er það Sindri Sindrason glaðbeittur mættur í kaffi, eða er það lögreglan komin að vísa þér úr landi?
Þér og börnunum þínum?
Í gærmorgun átti að flytja úr landi fjölskyldu frá Írak sem hingað hefur leitað í von um griðastað undan ofbeldi og hörmungum í heimalandi sínu. Foreldrarnir eru ungir að árum og börnin þeirra fjögur: Ali, Kayan, Saja og Jadin. Það átti að senda fjölskylduna til Grikklands þótt öllum megi vera ljóst að þar bíður hennar ekkert nema eymd og ömurleiki. Grísk stjórnvöld hafa að mörgu leyti staðið sig mjög vel í þeim flóttamannastraumi sem hófst er Assad Sýrlandsforseti ákvað að fara með vopnum á hendur eigin þjóð. En núna geta Grikkir ekki meir og það er öllum ljóst að það mun fara illa fyrir börnunum ef þau verða send þangað.
Betur hlúð að börnum hér
Svo var hætt við flutninginn á síðustu stundu, en fjölskyldunni tilkynnt að hún verði send út eftir viku. Og væntanlega aðrar barnafjölskyldur í sömu stöðu líka. Fjölskyldur sem höfðu gert sér vonir um að á Íslandi byggi gott fólk og hér væru stjórnvöld sem sendu ekki börn í lífshættulegar aðstæður.
Fyrir utan allt annað, þá hefur nú Covid-19 veikin aukið enn á hættuna sem við værum að senda börnin út í. Með fullri virðingu fyrir Grikkjum, þá held ég að betur yrði hlúð að börnunum hér, ef þau veiktust, heldur en ef þau væru meira og minna á vergangi eins og verður hlutskipti þeirra í Grikklandi.
Auðvitað á ekki að senda þessi börn neitt.
Það mun ekki gera íslensku samfélagi hót þótt þessari fjölskyldu, og hinum barnafjölskyldunum líka, verði leyft að setjast hér að. Þvert á móti. Samfélagið verður bara fjölbreyttara og betra.
Af hverju þurfum við sífellt að standa frammi fyrir því að stjórnvöld okkar fremji þau níðingsverk sem brottflutningur þessara barnafjölskyldna væri?
Í alvöru talað, af hverju?
Einhver stakk upp á því í athugasemdakerfum hér á Stundinni að ef það stendur í raun og veru til að senda þessi börn úr landi eftir viku, þá skuli þeir sjá um það sem raunverulega bera ábyrgðina.
Þorir Katrín að leiða börnin út í flugvél?
Þetta er í sjálfu sér góð hugmynd.
Áslaug Arna dómsmálaráðherra banki upp á hjá fjölskyldunni um miðja nótt til að keyra hana út á flugvöll.
Katrín Jakobsdóttir leiði börnin að landgangi einkaflugvélarinnar, sem á að flytja þau til Grikklands.
Bjarni Benediktsson gauki að þeim bleikri kökusneið í nesti en skelli svo flugvélardyrunum á eftir þeim.
Sjáiði fyrir ykkur að þau hefðu þrek til að gera þetta?
Nei, auðvitað ekki. Meðan flugvél fjölskyldunnar rennir sér út á flugbrautina, þá verða þau þrjú að taka á móti Sindra Sindrasyni í kaffi og hafa það svo notalegt og kósí.
Tala um hvað íslenskt samfélag sé gott og miskunnsamt.
Mjólk út í kaffið?
Auðvitað ráða þau þessu
Ég myndi reyndar bera svolitla virðingu fyrir þeim ef þau þyrðu að fylgja börnunum sjálf út á flugvöll.
En þau munu beita fyrir sig óbreyttum lögregluþjónum og starfsmönnum Útlendingastofnunar, og í hæsta lagi veifa reglugerðum um að ekkert sé hægt að gera og fá sér svo annan kaffibolla með Sindra.
En auðvitað ráða þau þessu. Ef sá glæpur verður framinn eftir viku að þessum börnum verður vísað úr landi til Grikklands, þeim og öðrum börnum sem hafa grátbeðið um miskunn okkar, þá eru það Áslaug Arna, Katrín, Bjarni og önnur máttarvöld í þessu landi sem þann glæpa fremja.
Sykur kannski?
Athugasemdir