Nú skal segja.
Í okkar hversdagslega umhverfi er fólk sem flesta myndi ekki gruna að væri trans.
Þá er ég ekki að tala um fólk sem á eftir að koma út sem trans, heldur sem hefur hafið sitt ferli jafnvel fyrir löngu og kannski bara farið með það leynt.
Sumum dömum finnst maskari vera möst og sumum alls ekki.
Sumar konur mæta í rauðu plastkorsiletti á árshátíð bankans sem þær vinna fyrir og aðrar mæta í flatbotna skóm og skemmta sér ágætlega.
Sumar konur nota túrkís augnskugga og sumar eru sköllóttar.
Hann heldur utan um konuna sína og segir stoltur í líkamanum sínum en hneykslaður, þó upplýsandi í tóninum: Konur eiga ekki að mála sig, þær eru náttúrulega fallegar.
Hann gerir sér hins vegar ekki grein fyrir því að konan hans er með baugafelara, BB-krem, maskara og litaðan varasalva … jú og smá sólarpúður … og döhhh … strípur.
Það sést alltaf hvaða konur eru málaðar og það sést alltaf þegar karlmenn eru að þykjast vera konur því þeir mála sig svo illa ... og þeir eru með svo stórar hendur … og röddin kemur alltaf upp um þá,
sagði stolti, hneykslaði en „vel“ upplýsti maðurinn.
Það eru ekki allir sem kjósa að vera opinberlega trans.
Mig langaði að vera konan sem myndi falla í kramið, fljóta í gegnum Kringluna án þess að vera álitin tvisvar og halda áfram að skapa mína list.
Mig langaði ekki að vera talsmanneskja transmálefna.
Ég fékk oft að heyra að það væri það rétta í stöðunni, að ég myndi taka upp hanskann fyrir mér og öðru transfólki því það væri þörf á að fræða fólk.
Þetta væri sjálfkjörið, mér bæri skylda að sinna þessu.
Ég fékk ósk mína uppfyllta, í dag er ég ósýnilega konan. Ég kalla hana stundum drauginn. Mér finnst það þægilegra en karlinn í kjólnum, sem var kallað á hóra mjööög oft og morðhótanir í ræktinni á Íslandinu góða, flestar á útlensku. En í netheimum mest Arnarar, Sigurðir, Önnur og Höskuldar.
Ein vinkona mín sagði: Ósýnilega konan ... Þær eru svolítið magnaðar.
Ég þekki ekki háttarlag unga drengsins sem er óvelkominn hingað, en hann er opinberlega trans.
Hvort sem það var örþrifaráð til að fá áheyrn, til að bjarga lífi sínu og fá að vera, eða hvort hann er opinberlega trans af því hann er með taugar til að vera fyrirmynd og láta gott af sér leiða.
Kannski er hann kynsegin ... og það skiptir ekki máli.
Landið sem hann kemur frá er á meðal þeirra landa þar sem hvað flestar aðgerðir eru gerðar á transfólki.
Nú hef ég ekki alveg farið í saumana á þessu máli, en einhverra hluta vegna finnst mér flestar þessar aðgerðir vera gerðar á konum. Mögulega af því landið sem hann kemur frá er svo mikið gamaldags karlaveldi.
Má bjóða þér Rembulaði?
Ég er ekki svo viss með brjóstnám og aðrar stórar aðgerðir þegar kemur að körlum í þessu landi.
Það sem þetta land hefur hins vegar ekki þegar kemur að transmálum, þá er það umburðarlyndi fyrir fólki sem fellur ekki undir normið þegar kemur að kynjun.
Aðeins tvö kyn, karl og kona.
Ef þú ert kona og ef þú ert transkona, þá er eins gott að þú klæðir þig eins og Bollywood-prinsessa alla daga og farðir þig eins og frægur Youtube-ari.
Það er ekkert umburðarlyndi fyrir einhverju öðru en eitthvað sem heitir kona eða karl.
Fólk er drepið fyrir það eitt að rugga bátnum þegar kemur að kynjum og það virðist vera í lagi að drepa þannig fólk.
Vinkona mín kemur frá þessu landi, hún er flóttakona og hún er trans. Hún er óaðfinnanleg Bollywood-drottning alla daga vikunnar. Hún talaði um að konurnar í hennar hverfi voru látnar labba upp aðalgötuna allsberar ef það komst upp um að þær væru trans … eða ef þær sýndu einhvers konar mótmæli.
Núna er Maní opinberlega trans og netið nær um allan heim og lengra.
Hann er ekki í góðri stöðu upp á að geta varið sig, nema mögulega með því að vera ósýnilegur, en það eru til sannanir á netinu.
Ósýnilegur, ungur karlmaður sem væri fyrir bestu að mynda ekki félagsleg tengsl, eða koma heiðarlega fram.
Það er nóg pláss hér og þar sem við höfum skorað hátt, stundum hæst þegar kemur að jafnrétti kynjanna (fleirtöluorð, þýðir ekki endilega tvö), þá þurfum við að halda áfram í baráttunni sem snýr að femínisma.
Unga kynslóðin mun líka leiða okkur áfram eða afturábak, jafnvel eitthvert annað og við þurfum fleiri blóm.
Athugasemdir