„Ég heyrði nafnið mitt, og ég labba upp á svið, hugsandi: Ég get þetta, ég get þetta. Og þegar ég kom á sviðið sá ég að allir stóðu. Það felldi mig alveg,“ sagði tónskáldið og sellóleikarinn Hildur Guðnadóttir eftir að hafa orðið fyrsti Íslendingurinn til að vinna Óskarsverðlaun og fyrsta konan til að vinna verðlaunin ein fyrir kvikmyndatónlist.
Í viðtölum eftir að hafa tekið við verðlaununum sagðist hún hafa reynt að komast inn í hugarheim Jókersins og kafa ofan í drifkraft sögunnar þegar hún gerði tónlista um kvikmyndina.
„Það var aðalinnblásturinn minn,“ sagði hún.
Hildur hefur gert tónlist við fjölmargar íslenskar kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir, meðal annars Eiðinn eftir Baltasar Kormák og Ófærð með Jóhanni Jóhannssyni. Magnþrungin túlkun Hildar á sálminum Heyr himnasmiður heyrðist svo í bandarísku þáttaröðinni vinsælu A Handmaid’s tale árið 2017. Hildur gerði tónlistina við kvikmyndirnar Mary Magdalene og Sicario ásamt Jóhanni Jóhannssyni, og tónlist við meðal annars kvikmyndirnar Journey’s End, Tom of Finland, Strong Island og Sicario áður en hún sópaði að sér verðlaunum fyrir Chernobyl-þáttaröðina og Joker.
Hún er einnig fyrsta konan sem vinnur Golden Globe og Bafta-verðlaunin ein án samstarfs við annað tónskáld.
Athugasemdir