Nýtt efni
Truflaði ávarp utanríkisráðherra krafðist svara vegna Gaza
Kona kallaði að utanríkisráðherra á ráðstefnu í morgun og spurði hvers vegna stjórnvöld hefðu ekki fordæmt árásir Ísraelshers á Gazasvæðið. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi var í salnum og klappaði fyrir konunni.
Forsetaframbjóðendur mætast í Pressu
Fjórir frambjóðendur til embættis forseta Íslands mæta í beina úsendingu í Pressu á föstudag. Þátturinn verður sendur út klukkan 10.00 frá ritstjórnarskrifstofu Heimildarinnar. Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir sitja fyrir svörum.
Bastarden (ásamt Ingu Steinunni og Hákoni Erni)
Kjartan og Magnús fá til sín spunaleikarana og grínistana Ingu Steinunni og Hákon Örn til að rýna í kvikmyndina Bastarden með Mads Mikkelsen í aðalhlutverki.
Samfylkingin boðar aukin auðlindagjöld og nýtingu virkjunarkosta
Samfylkingin hefur tilkynnt að hún vilji auka ársframleiðslu á raforku um 5 TWh á tíu árum, koma á almennu auðlindagjaldi og stórauka uppbyggingu innviða svo sem samgangna.
Fiðrildi með kulnun sem lærði að hlusta á líkamann
Kara Elvarsdóttir lýsir sjálfri sér sem fiðrildi og kvíðakerlingu. Hún hefur alltaf átt erfitt með að segja nei við nýjum tækifærum sem leiddi til þess að hún fór í kulnun. Vegferðin hefur hins vegar leitt hana á betri stað og í dag leiðir hún hóp kvenna sem hreyfa sig meðvitað. En hvað er meðvituð hreyfing?
Milljarðar kvenna sem passa ekki inn í útlitsboxið
Þó svo að hættulega grannt „heróín-lúkk“ sé ekki lengur í tísku og að Bridget Jones sé ekki lengur talin feit, eru útlitskröfur til nútímakvenna enn óraunhæfar, segir prófessor í félagssálfræði. Hún er þó bjartsýn: „Ég þekki ekki dæmi um að áður hafi verið kynslóð sem er vísvitandi að berjast gegn því að fólk sé smánað út af útliti.“
Margt bendir til þess að bensínverð geti farið að hækka skarpt
Innkaupaverð á olíu hefur hækkað og hlutur olíufélaga í hverjum seldum lítra af bensín lækkað. Það bendir til þess að verðhækkanir gætu verið í kortunum.
Hringur af sjókví hjá Arnarlaxi fauk í óveðri og rak á land
Arnarlax varð fyrir því óhappi um helgina að hringur af sjókví frá fyrirtækinu fauk á haf út við flutning á honum. Björn Hembre, forstjóri Arnarlax, segir að ekkert tjón hafi orðið á fólki eða útbúnaði vegna þessa.
Birgir Þórarinsson segir það mistök að ekki var gert ráð fyrir nýrri kvennadeild á nýja Landspítalanum
Í störfum þingsins ræddu þingmenn ýmis mál. Diljá Mist Einarsdóttir gagnrýndi Samfylkinguna, Birgir Þórarinsson benti á mygluvandamál Landspítalans og sérstaklega þá stöðu sem er komin upp á kvennadeildinni. Gagnrýndi hann að ekki væri gert ráð fyrir nýrri kvennadeild í byggingu nýja Landspítalans. Jóhann Páll Jóhannesson benti á að eins og staðan er í dag geti smálánafyrirtæki notfært sér neyð fólks og grætt á þeirra stöðu.
Halla Hrund Logadóttir hefur þrefaldað fylgi sitt á tíu dögum
Tveir frambjóðendur til forseta mælast með mest fylgi og ekki er tölfræðilega marktækur munur á stöðu þeirra. Enginn frambjóðandi nýtur hylli yfir 30 prósent þjóðarinnar.
Ólafur Páll Jónsson
Hnípin þjóð
Fram undan er virkjun í neðri hluta Þjórsár. Hvers vegna breytum við grónu landi í eyðimörk, hvers vegna tökum við eitthvað sem hefur þróast um þúsundir ára og er algerlega einstakt í öllum heiminum og skiptum því út fyrir eitthvað sem endist kannski í hundrað ár og gæti verið hvar sem er?
Mynd af Katrínu og forsetanum verður fjarlægð úr niðurtalningu kvöldfrétta RÚV
Myndskeið af Katrínu Jakobsdóttur og Guðna Th. Jóhannessyni hefur verið sýnt í niðurtalningu kvöldfrétta RÚV síðustu daga. Fréttastjóri segir það sjálfsagt að fjarlægja myndskeiðið, enda viðkvæmt í aðdraganda forsetakosninga.
Slysafrásagnir, skilningarvitin og lykt
Í þættinum ræða Dagrún og Sigurlaug við Vilborgu Bjarkadóttur þjóðfræðing. Vilborg hafði lokið myndlistarnámi þegar hún kom inn í þjóðræðina og hefur sá bakgrunnur mótað hana sem rannsakanda, en strax í listnáminu fékk hún áhuga á sögnum og þá sérstaklega veikindasögum.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
„Stanslaust vonleysi vaknar um leið og þú mætir,“ segir ungur venesúelskur hælisleitandi um Ásbrú. Þar hafi verið ómögulegt fyrir hann, eða nokkurn mann, að aðlagast íslensku samfélagi – sem er atriði sem stjórnmálamenn þvert á flokka hafa sagt mikilvægt. Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur sagst vilja fleiri búsetuúrræði á borð við Ásbrú.
RIFF fékk tæplega 100 milljónir frá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg hefur styrkt kvikmyndahátíðina RIFF um tæplega 100 milljónir króna frá árinu 2013. Borgin hætti að styrkja RIFF í eitt ár eftir gagnrýni frá starfsfólki sem nú hefur aftur komið fram.
Varð vitni að handtöku í leigubílstjóramálinu
Í febrúar var leigubílstjóri handtekinn, en hann var grunaður um alvarlegt kynferðisbrot gegn konu sem hafði verið farþegi í bíl hans. Blaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson fékk að fylgja lögreglu eftir við rannsókn málsins. En hann varð meðal annars vitni að handtöku annars sakborningsins og fékk að sjá meintan vettvang glæpsins.