Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sakar „presta Laugarneskirkju“ um að hafa reynt að koma í veg fyrir að lögregla gæti framfylgt lögum í landinu. Vísar hann til atviks í síðustu viku þar sem tveir hælisleitendur frá Írak, sem vísa átti úr landi, fengu að bíða eftir lögreglu uppi við altari Laugarneskirkju ásamt vinum sínum og Kristínu Þórunni Tómasdóttur, sóknarpresti í Laugarneskirkju og Toshiki Toma, presti innflytjenda, sem veittu þeim andlegan stuðning. Aðeins einn prestur starfar í Laugarneskirkju samkvæmt vef kirkjunnar en Kristín og Toshiki stóðu saman að því að opna dyr kirkjunnar fyrir hælisleitendunum með vilyrði Biskupsstofu. Vildu þau þannig láta reyna á hvort fornar venjur um kirkjugrið yrðu virtar.
Refsivert að hindra lögregluaðgerðir
Samkvæmt almennum hegningarlögum varðar þar sektum eða fangelsi að tálma því að handhafi lögregluvalds gegni skyldustörfum sínum. Eins og sjá má á myndbandi sem tekið var upp af lögregluaðgerðinni í Laugarneskirkju höfðu prestarnir engin afskipti af lögreglumönnunum sem framkvæmdu aðgerðina. Hins vegar ræddi starfsmaður Útlendingastofnunar við sóknarprest Laugarneskirkju á vinsamlegum nótum áður en lögregluaðgerðin átti sér stað. Sagðist hann telja framtak kirkjunnar virðingarvert.
„Jæja, nú er evrópukeppninni lokið og þá getur maður tekið upp með góðri samvisku fyrri iðju í leiðindum og neikvæðni. Sem mikill stuðningsmaður Þjóðkirkjunnar varð ég fyrir miklum vonbrigðum þegar prestar Laugarneskirkju, að því virðist með stuðningi yfirstjórnar þjóðkirkjunnar, skyldu hafa frumkvæði að því að reyna að koma í veg fyrir að lögregla gæti framfylgt lögum í landinu með því að hýsa hælisleitendur sem vísað hafði verið frá landinu,“ skrifar Brynjar Níelsson
Athugasemdir