Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Tískuþrælar

Upp­á­halds fata­versl­un Ís­lend­inga, H&M, verð­ur opn­uð á land­inu á næsta ári. Sænska versl­un­ar­keðj­an hef­ur hins veg­ar ít­rek­að ver­ið gagn­rýnd fyr­ir að brjóta á rétt­ind­um starfs­manna sinna.

Fjölmargir fögnuðu þegar fréttir bárust af því að sænska verslunarkeðjan H&M væri á leið til landsins, en þrjár verslanir verða opnaðar á næstu tveimur árum. H&M kemur bæði í Kringluna og Smáralind á næsta ári og þá er stefnt á opnun verslunarinnar á Hafnartorgi, í miðbæ Reykjavíkur, árið 2018. Íslendingar elska H&M, sem birtist helst í þeirri staðreynd að H&M er veltuhæsta fatabúðin á meðal Íslendinga, þrátt fyrir að engin H&M verslun sé rekin hér á landi.  

Ímyndarherferð í skugga hneykslis 

H&M er næststærsti fataframleiðandi heims, en fyrirtækið rekur um 4.100 verslanir um allan heim. Þá voru rúmlega 400 verslanir til viðbótar opnaðar á þessu ári, en yfirlýst markmið fyrirtækisins er að fjölga verslunum um tíu til fimmtán prósent á hverju ári. Verksmiðjur H&M eru um 1.900 og er talið 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu