Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

„Níðingsskapur að reka Elínu“

Sjón­varps­mað­ur­inn Sig­mund­ur Ern­ir Rún­ars­son hef­ur ver­ið 30 ár í sjón­varpi. All­ir þekkja and­lit hans. Brúna­þung­ur sagði hann drama­tísk­ar frétt­ir og skipti hik­laust yf­ir í gáska­fullt yf­ir­bragð þeg­ar sá gáll­inn var á hon­um. Hann er ein­kenni­leg blanda af ljóð­skáldi og grjót­hörð­um blaða­manni. Eft­ir ára­tug­astarf á Stöð 2 voru hann og eig­in­kona hans rek­in. Á sama tíma var hann að glíma við níst­andi sorg vegna dótt­ursmissis. Hann ákvað að ger­ast þing­mað­ur og missti þing­sæt­ið eft­ir kjör­tíma­bil­ið. Nú stýr­ir hann sinni eig­in sjón­varps­stöð, Hring­braut, á milli þess sem hann klíf­ur hæstu fjöll.

Við erum ekki að reyna að vera stærsta eða merkilegasta sjónvarpsstöð í heimi. Við erum að gera það sem við kunnum þokkalega og erum með báða fætur á jörðinni. Ég get ekki annað en verið ánægður. Við náum vel til fólks og erum sterk í hópnum 30 ára og eldri á Reykjavíkursvæðinu. Yfir 20 prósent af þessum hópi fer reglulega inn á Hringbraut. Við finnum fyrir miklum hlýhug og stuðningi með þetta nýja sjónvarp okkar sem gengur út á að vera fræðandi talmálssjónvarp,“ segir Sigmundur Ernir sem lagði út í óvissuna fyrir rúmlega ári þegar hann stofnaði sjónvarpsstöðina Hringbraut ásamt félögum sínum. Hann og Guðmundur Örn Jóhanns­son, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landsbjargar, standa í stafni en stöðin er að langmestu leyti í eigu starfsmanna. Og það ganga allir í þau verk sem til falla. 

„Við skiptum með okkur öllum verkum. Stundum tek ég að mér að svara í símann. Á fimmtudögum skúra ég vinnustaðinn með félögum mínum. Saman göngum við í að skipta um leikmynd og gera það sem þarf,“ segir Sigmundur. 

Góðar viðtökur

Stöðin hefur fengið góðar viðtökur og þykir vera fagmannleg í hvívetna. Útsendingin er í háskerpu en sökum þess að hluti fólks nær ekki þeirri útsendingu var gripið til þess að senda einnig út á lægri tíðni. 
Sjónvarpsstjórinn, Sigmundur Ernir, hefur áratugareynslu af sjónvarpi. Hann hefir unnið fyrir allar stóru stöðvarnar, Ríkisútvarpið. Stöð 2 og Skjáeinn og jafnan vakið athygli fyrir þætti sína. 

Það þykir nokkuð djarft að stofna sjónvarpsstöð í dag. Sporin ættu að hræða. Menn hafa misst fótanna í slíkum rekstri á örskömmum tíma. Þar er nærtækt að minnast sjónvarpsstöðvarinnar Miklagarðs sem hélt út í örfáa mánuði og sigldi í strand. Sama gerðist með ÍSTV sem lognaðist út af eftir stuttan líftíma. Sigmundur segist ekkert óttast í þeim efnum á meðan fyrirtækinu sé stjórnað af skynsemi. Hann segir stofnkostnað við Hringbraut einungis vera brot af því sem gerðist þegar Stöð 2 var stofnuð. 

„Útsendingartækin, sem við leigjum af tæknistjóranum okkar, kosta aðeins 15 milljónir króna. Til samanburðar þá kostuðu slík tæki hundruð milljóna þegar Stöð 2 var að hefja göngu sína. Við erum í litlu húsnæði þar sem hver fermetri er nýttur. Það er þröngt um okkur en við erum sátt og fólki líður vel. Við erum þegar komin upp í að vera með tvo tíma af nýju efni á dag, sem er umfram áætlun,“ segir hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár