Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Mads Gilbert: „Sagan mun dæma okkur“

Lækn­ir­inn og hjálp­ar­starfs­mað­ur­inn Mads Gil­bert hef­ur stað­ið vakt­ina á stærsta spít­ala Gaza síð­ustu fjór­ar árás­ir Ísra­els­hers á svæð­ið. Hann for­dæm­ir linnu­laus­ar árás­ir Ísra­els á al­menna borg­ara og seg­ist ekki í vafa um að her­inn hafi fram­ið stríðs­glæpi á síð­asta ári þeg­ar rúm­lega 2200 Palestínu­menn voru drepn­ir, þar af 551 barn.

Frá árinu 1981 hefur Norðmaðurinn dr. Mads Gilbert sýnt Palestínumönnum samstöðu með bæði læknisaðstoð og rödd sinni. Hann er pólitískur læknir, óhræddur við að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu og réttlæta mótspyrnu Palestínumanna. „Ég er með lífinu í liði,“ segir hann. 

Mads hefur staðið vaktina á al-Shifa spítalanum á Gaza frá árinu 2006 en á þeim tíma hefur Ísraelsher gert alls fjórar innrásir á svæðið. Líkt og Mads bendir á hefur átta ára barn á Gaza nú upplifað fjögur, blóðug stríð og horft upp á hluti sem ekkert barn ætti að þurfa að lifa. Í dag, 8. júlí, er eitt ár liðið frá síðustu innrás Ísraelshers en hún stóð yfir í 51 dag og leiddi yfir 2200 Palestínumanna til dauða, þar af 551 barn. Mads er nú staddur hér á landi að kynna nýjustu bók sína, Nótt í Gaza, sem kom nýverið út í enskri þýðingu. Í bókinni segir hann frá upplifun sinni af einni blóðugustu árás Ísraelshers til þessa í máli og myndum. Þá segir hann sögur Palestínumanna, sögur bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks, sem þrátt fyrir allt eru bæði vingjarnlegir og gestrisnir.

Stundin settist niður með Mads Gilbert og fékk að fræðast betur um störf hans á Gaza og þennan einstaka mann sem í hættir sér ítrekað á stríðssvæði til þess að aðstoða þá sem þurfa svo sárlega á athygli okkar og samstöðu að halda.  

Stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyni

Í síðustu viku kom út ítarleg rannsóknarskýrsla á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um innrásina á Gaza í júlí og ágúst á síðasta ári. Niðurstaða skýrsluhöfunda er sú að alþjóðalög voru brotin og að mögulega hafi verið um stríðsglæpi að ræða. 

Íbúar Gaza

*tölur teknar saman af Mads Gilbert upp úr skýrslum Sameinuðu þjóðanna

1,8 milljónir manns búa á Gaza svæðinu

43,6 % eru undir fimmtán ára aldri

Miðgildi aldurs er 17,6 ár

Atvinnuleysi er 50%

71,5% eru flóttamenn

 

„Ég vona að hver einasti stjórnmálamaður í vesturheimi muni lesa skýrsluna því hún er mjög átakanleg,“ segir Mads. „Í mínum huga er enginn vafi að árásir Ísraels á Gaza voru stríðsglæpir og að öllum líkindum einnig glæpir gegn mannkyni.“ Hann bendir einnig á að í vopnuðum átökum flýji almennir borgarar vanalega heimili sín eftir einn eða tvo daga. Þeir leiti skjóls í nágrannalönduð eða héröðum. „En á Gaza getur enginn flúið. Það er ekkert skjól. Sameinuðu þjóðirnar komu á laggirnar nokkrum neyðarskýlum í skólum sínum og í skýrslunni er það nákvæmlega skráð hvernig Ísraelsmenn sprengdu þessi neyðarskýli og drápu tugi saklausra borgara og börn sem reyndu að finna einhvern griðastað í skólum og undir verndarvæng Sameinuðu þjóðanna.“

Í skýrslunni kemur fram að flóttamannaaðstoðin, sem rak athvörfin í skólunum, var í reglulegum samskiptum við Ísraelsmenn og lét þá margoft 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Netanayhu boðar „allsherjarárás“ og fyrirskipar „rýmingu Rafah“
ErlentÁrásir á Gaza

Net­anayhu boð­ar „alls­herj­ar­árás“ og fyr­ir­skip­ar „rým­ingu Rafah“

Benjam­in Net­anya­hu, fyr­ir­skip­aði rétt í þessu rým­ingu Rafah, þar sem alls­herj­ar­árás Ísra­els­hers sé yf­ir­vof­andi. 1,5 millj­ón manns sem leit­að hafa sér skjóls á Rafah geta hins veg­ar ekk­ert flú­ið, Ísra­els­her um­kring­ir borg­ina í norðri og landa­mær­in við Egypta­land til suð­urs eru lok­uð. Lækn­ir seg­ir stríð­an straum af saur fylla göt­urn­ar og að mann­fall geti tvö­fald­ast eða þre­fald­ast beiti Ísra­el­ar sömu vopn­um á Rafah og þeir gera ann­ars stað­ar á Gaza.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár