Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Fjársvelt samneysla og sögulegar óvinsældir

Sam­fé­lags­mynd Ís­lands er að gjör­breyt­ast und­ir rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­son­ar. Rík­is­stjórn, sem með réttu má kalla óvin­sæl­ustu rík­is­stjórn sög­unn­ar, hef­ur með að­gerð­um sín­um op­in­ber­að áform sín um einka­væð­ing­ar­stefnu í heil­brigð­is- og mennta­mál­um.

Samfélagsmynd Íslands er að gjörbreytast undir ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Ríkisstjórn, sem með réttu má kalla óvinsælustu ríkisstjórn sögunnar, hefur með aðgerðum sínum opinberað áform sín um einkavæðingarstefnu í heilbrigðis- og menntamálum. Vegtollar vegna vegaframkvæmda hafa verið boðaðir og vopnaðir lögreglumenn verða reglulegir gestir á mannfögnuðum í sumar.

Um leið og ríkisstjórnin rekur gríðarlega aðhaldssama útgjaldastefnu fullyrða ráðherrar og þingmenn stjórnarmeirihlutans að útgjöld ríkisins séu gríðarlega mikil. „Það hef­ur orðið veru­leg aukn­ing á raunút­gjöld­um til LSH á und­an­förn­um árum og stefnt er að því að svo verði áfram,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, í viðtali við Morgunblaðið. Staðhæfingar Þorsteins samræmast alls ekki raunveruleikanum. Hin meinta hækkun Þorsteins á ríkisframlögum til Landspítalans hefur ekki átt sér stað frá árinu 2015. Þá fullyrti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í jómfrúarræðu sinni að ríkisútgjöld væru einna hæst á Íslandi. „Útgjöld ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu eru eiginlega hvergi hærri meðal þróaðra ríkja en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár