„Ég hef verið í átakanlegum pælingum síðustu daga. Svo erfiðum að ég hef ekki sofið og jafnvel grátið mig í svefn. Ég hef komist að því að ég er neyslufíkill samfélagsmiðla,“ skrifaði Vaka Njálsdóttir, ritstýra Verzlunarskólablaðsins, á Instagram síðuna sína í gær. Þar vekur hún athygli á skaðlegu sambandi sínu við samfélagsmiðla og notar til þess myllumerkið #lítumupp. Viðbrögðin hafa verið gríðarleg og hafa fjölmargir sett sig í samband við Vöku og þakkað henni fyrir að opna á þessa umræðu.
„Ég hef verið að hugsa um að gera þetta síðan í sumar en vissi að þetta væri viðkvæmt mál og að margir yrðu ósammála mér. Ég er sjálf svo háð samfélagsmiðlum og var ekki viss um að ég myndi þora að gera þessar breytingar. En fólk talar mjög mikið um þessa fíkn, hversu háð við erum orðin skjánum og símunum og þessa tilbúnu ímynd af okkur sjálfum á netinu. Ég geymdi þetta bak við eyrað þar til Essena O’Neill steig fram og opnaði á umræðuna,“ segir Vaka í samtali við Stundina en hin ástralska Essena O’Neill hefur vakið heimsathygli á síðustu dögum eftir að hún sagði skilið við samfélagsmiðla. O’Neill var með yfir 700 þúsund fylgjendur á
Athugasemdir