Þessi færsla er meira en 5 ára gömul.

Reykjavík = Svifryksvík?

Ég hef löngum kvartað yfir þeirri áráttu íslenskra álitsgjafa að einblína á Ísland, halda að hin og þessi alþjóðlegu vandamál séu séríslensk fyrirbæri. Í ljós kemur að svifryksmengun er ekki sérreykvískur vandi, í apríl var slík mengun svo mikil í Ósló að hún var í ellefu daga samfleytt yfir hættumörkum. Ástandið var litlu betra í ýmsum bæjum austanfjalls í Noregi. Að sögn norskra fjölmiðla er möl sem borin hefur verið á göturnar aðalorsakavaldur mengunarinnar. Hún molni undan ofurþunga bílanna og verði að rykkornum sem þyrlist upp í andrúmsloftið. Í ljósi þessa er hæpið að kenna borgarstjórnarmeirihlutanum í Reykjavík um þessi ósköp og borgin ekki sú eina sem kalla mætti „Svifryksvík“.  Sennilegasta skýringin á svifryksmengunni er ofurbílvæðing víða um lönd, ekki síst á Íslandi.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni