Vindur Egils
Egill Helgason hneykslast yfir atgangi fjölmiðla undanfarið, í kjölfar frétta um meinta aðkomu forsætisráðherra að fjármögnun DV. Ef marka má 2-3 örstutt blogg Egils um málið, virðist hann telja fjárkúgunina þann vinkil sem ræða má um - en ekkert annað.
Athugasemdir Egils rifjuðu upp fyrir mér gagnrýni sem hann fékk á sig í febrúar 2008, eftir að hafa hleypt geðlækni í Silfrið til að greina sturlunina í íslensku útrásinni. Margir töldu þá Egil og geðlækninn, Andrés Magnússon, uppfulla af "rugli" og "lágkúru". Hafliði Helgason gaf í skyn af því tilefni að Egill hefði minnt á "fávísa fegurðardrottningu" í viðtalinu við Andrés - og skammaði svo fjölmiðlamenn fyrir að birta þá lygasögu að bankaútrásin væri blekking.
"Þessi niðurstaða er svo víðáttuvitlaus að það er hneisa að fjölmiðlamenn skuli ekki kanna grunn hennar áður en þeir hleypa henni í loftið."
(Hafliði Helgason, athugs. við blogg Hallgríms Thorst. 28.02.08)
Nú er ég ekki svo bernskur að telja ásakanir í garð Sigmundar Davíðs hljóti að vera réttar, fyrir það eitt að ógeðfelldar ásakanir fyrir sjö árum reyndust réttar. Ég skil jafnframt ágætlega að Egill skuli hneykslast á þessu - málið er ljótt og málsbætur gerenda virðast heldur veiklulegar.
Líkt og Egill segir sjálfur, í athugasemd við eigið blogg:
"Þegar svo er vita að önnur dæmi eru um fjárkúgunartilburði hjá sömu aðilum – ja, úr hvaða átt blæs þá vindurinn?"
(Egill Helgason 05.06.15)
En Egill mætti gjarnan hafa í huga að málið, utan hins augljósa, snýr að eftirfarandi persónum og leikendum:
- forsætisráðherra sem hefur sýnt og sannað að reglur skipta hann litlu og hikar hann ekki við að fara á svig við góða stjórnsýsluhætti.
- stjórnmálaflokki sem á sér einstæða sögu hótana og afskipta af hinum ýmsu miðlum.
- fjölmiðli sem gekk hart fram í að fletta ofan af hneykslismálum, þar til hann var yfirtekinn af mönnum sérlega velviljuðum flokki núverandi forsætisráðherra.
- kaupanda sem á sér skrautlega sögu í starfi fyrir flokk forsætisráðherra og er hokinn af reynslu úr REI-kfylltum bakherbergjum.
- banka sem greiddi ekkert í sérstaka bankaskattinn árið 2014, sökum sérlega heppilegrar lagasetningar sem kom bankanum vel. Forstjóri bankans er eiginmaður systur forsætisráðherra.
Að vel athuguðu máli held ég Egill hljóti að skilja hvers vegna margir reyna nú að sjá út fyrir sjóndeildarhringinn og spyrja, líkt og Egill sjálfur:
"Úr hvaða átt blæs vindurinn?"
Athugasemdir