Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Hvað haldiði?

Hvað haldiði að mörgum bankaútibúum hafi verið lokað vegna þess hve starfsfólkið var lélegt í hugarreikningi?

Hvað haldiði að mörgum pósthúsum hafi verið skellt í lás vegna þess að bréfberar áttu í erfiðleikum með utanáskrift?

Hvað haldiði að margar sólbaðsstofur hafi farið á hausinn vegna þess að eigendurnir kunnu ekki að fylla út pöntunarform fyrir perur?

Hvað haldiði að margar vídeóleigur hafi lagt upp laupana vegna þess að menn kunnu ekki að lesa lýsingarnar aftan á spóluhulstrunum?

Hvað haldiði að margir sjómenn hafi orðið að víkja fyrir tækniframförum vegna þess að þeir voru orðnir lélegir í reikna út hásetahlutinn?

Hvað haldiði að bíði mörg frábær, ókunn atvinnutækifæri fyrir börn þessa fólks þegar menntakerfið er búið að skera burtu stóran hluta af skapandi námi til þess að tryggja að börnin verði eins læs og reiknandi og foreldrarnir? 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu