Að njóta andartaksins
Núvitund er mjög vinsæl nú um stundir. Það, að njóta andartaksins, að upplifa það til fullnustu, færir manni kyrrð og ró og hvíld frá amstri dagsins. Ekki veitir heldur af, þegar áreitið er stanslaust og alltumlykjandi. Það dynja dulin og augljós skilaboð á skilningarvitunum allan daginn og meira að segja þegar við ætlum að slaka á heima fyrir, þá erum við síður en svo hult frá auglýsingaflórunni. Álag í vinnu, auglýsingar í fjöl- og samfélagsmiðlum gefa okkur engan grið.
Því er upplagt að taka sér augnablik og leyfa sér að njóta. Leyfa sér að gleyma öllum áhyggjum, þótt ekki sé í nema stuttan tíma og hvíla sig frá skyldum, hvort sem þær eru ímyndaðar eða raunverulegar.
En það er ekki eina leiðin til að njóta andartaksins. Dale Cooper, alríkislögreglumaðurinn geðþekki úr þáttunum Twin Peaks, orðaði þetta ansi skemmtilega og ég leyfi mér að snúa því yfir á okkar ylhýra og geri hans orð að mínum:
„Gefðu þér daglega eina gjöf. Ekki skipuleggja hana. Ekki bíða eftir henni. Leyfðu henni bara að gerast. Þetta getur verið ný flík sem þú kaupir, blundur í skrifstofustólnum eða tveir bollar af góðu heitu svörtu kaffi.“
Njóttu andartaksins. Hvern dag.
Athugasemdir