#krabbameinkostar
Í tilefni þess að kosið verður til Alþingis 28. október nk. (enn einu sinni) ætla ég og samferðalangar mínir í baráttunni að deila með ykkur glefsum úr því absúrd “glamúrlífi” sem það er að vera einstaklingur með krabbamein á Íslandi. Bara svona hversdagslegar uppákomur til þess að sýna ykkur hversu galið þetta heilbrigðiskerfi okkar er. Þetta er einfaldlega málefni sem varðar líf eða dauða fólksins í kringum mig.
Færslurnar sem hér má finna eru upphaflega birtar á facebook og því endurbirtar á þessum vettvangi. Tilgangur bloggfærslnanna er að vekja athygli á þessum örsögum frá notanda heilbrigðiskerfisins sem er liður í einbeittum vilja mínum til að knýja fram breytingar á greiðsluþáttöku sjúklinga.
Dagur 1: Ég var að falla aftur niður í 1. greiðsluþrep lyfjakaupa. Lagði út 11.489 kr. í fyrstu ferð minni í apótekið af mörgum. Heildarkostnaður lyfja síðan ég greindist í febrúar þrátt fyrir að hafa náð í efsta lyfjaþrep (með mestu niðurgreiðslunni): 42.208 kr. Ekki nema 5 - 10 ár eftir af þessari meðferð. #krabbameinkostar
#lífiðernúna
Athugasemdir