Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Ó þið þarna vesalings forréttindapungar og píkur!

Ó þið þarna vesalings forréttindapungar og píkur!

Heimspressan dælir inn fréttum af fólki sem ýmist kafnar í vöruflutningabílum eða drukknar við að reyna koma sér frá stríðshrjáðum heimilum sínum. 
Landamærum er skellt í lás, núna þegar það ætti að galopna þau til að bjarga mannslífum. 
 

Og alveg jafn hratt dælast inn andstyggilegheitin frá löndum okkar. 
Fjölmennastur er hópurinn sem telur okkur eiga svo erfitt að við séum bara ekki aflögufær til að rétta út hjálparhönd í átt til fólks sem er svo örvinglað að það leggur af stað með börnin sín í lífshættulegt ferðalag í von um björgun.

Í einni rasista-ógeðisgrúbbunni á facebook er heimtað að við segjum okkur frá Schengen og þar fer fremstur i flokki, á meðal jafninga, formaður Hægri grænna, sem heitir Helgi Helgason.

Þið þarna forréttindapungar og forréttindapíkur! Þið hafið allt til alls. 
Í samanburðinum lifið þið ekki bara í vellystingum, það drýpur smjör af hverju einasta helvítis strái.

Hunskist til að setja ykkur í spor annarra og ímynda ykkur að þetta sé ykkar fólk í þessum aðstæðum. Ykkar kynstofn, ef það er það sem þið þurfið til að finna til.

Og að lokum: ég krefst þess að ríkisstjórn Íslands komi sér saman um að taka á móti 5000 flóttamönnum frá Sýrlandi. 
Og ég vænti þess að við öll, sem eitt, tækjum á móti þeim með opinn faðm og enn opnara hjarta.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni