Hver ertu?
Ég spjallaði við japanskan mann í lobbýi hótels fyrir mörgum árum. Þegar ég var búin að spyrja hann stanslaust spurninga sem ég hafði áhuga á að fá svör við stoppaði hann mig af. Hann hallaði sér aftur í stólnum og sagði „tala þú nú svo ég sjái þig“
Þetta situr alltaf í mér.
Ég elska að spjalla við fólk og hef ekki ennþá hitt neina manneskju sem á ekki áhugaverða sögu. Ég bý og vinn nánast á sama blettinum í miðborginni. Það hentar mér mjög vel af því að þá hef ég fleiri tækifæri til að hitta mismunandi fólk og fá mismunandi sögur. Sögur sem sýna mér veruleika sem er mér jafnvel algjörlega framandi.
Þökk sé ferðamönnum, hælisleitendum og nýjum Íslendingum.
Ég tel mig vera tiltölulega lausa við fordóma og mér er alveg sama hver þjóðfélagsleg staða manneskjunnar er. Sögurnar verða ekkert minna áhugaverðar sem drykkjumaðurinn segir mér heldur en þær sem skrifstofustjórinn segir. Nema síður sé.
Ég hef gert nokkrar tilraunir til að ræða við „konuna með ruslið“. Hún gefur ekki færi á sér. Mig langar svo mikið til að vita hver saga hennar er en ég veit ekki einu sinni hvað hún heitir.
Það er nefnilega svo mikilvægt fyrir okkur að muna að öll vorum við börn sem einhver elskaði. Öll höfum við haft einhvern í okkar liði sem velti því fyrir sér hvað myndi verða úr okkur. Einhvern sem hafði væntingar til þess að lífið yrði okkur gott.
En draumar rætast ekki alltaf. Lífshlaupið getur valdið því að við lendum á jaðrinum í samfélaginu. Skrýtin, skítug og/eða andlega brotin.
Röð tilviljana hefur valdið því að þessa vikuna hef ég verið í miklu návígi við fólk sem lifir þarna rétt utan við normið okkar. Það hefur minnt mig á að sjálf get ég vaknað á morgun inn í líf þar sem allt er breytt. Og það er ekkert lögmál sem lofar mér því að það verði til hins betra. Jafnvel þó svo að ytri aðstæður mínar ættu að geta gefið nokkuð góða vísbendingu til þess.
Ef ég verð skrýtin, skítug og veik einn daginn í útnára þinnar tilveru, þá skal ég tala og sýna þér hver ég er.
Kannski kemur það í veg fyrir að þú hafir fordóma fyrir þeirri manneskju sem ég er fyrir innan allar umbúðirnar sem passa ekki við litróf „hinna venjulegu“
Athugasemdir