Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.
Sigmundur Davíð köttar krappið
Þar sem ekki virðist öllu skipta hvert þeir leita sem vilja ná tali af forsætisráðherra, hvort eð er – hann hvorki er né verður við – hefur honum ókunnugur maður nú tekið að sér kynningarstörf Forsætisráðuneytisins í sjálfboðastarfi. Hér er þá mögulega fyrsta sjónvarpsviðtalið sem tekið er við ráðherra í viðtengingarhætti: svona er það ekki beinlínis, en svona væri það þá samt kannski.
Útvarpsviðtalið fór hins vegar raunverulega fram. Ráðherrann lét þessi orð út úr sér, öll og fleiri til, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um daginn. Skandalar geta iðulega af sér forvitnilegar setningar.
Athugasemdir