Þessi færsla er meira en 6 ára gömul.

Stjórnarslit: Fleira liggur að baki

Stjórnarslit: Fleira liggur að baki

Læt fylgja með sögulega mynd af Bjarna Benediktssyni þegar hann telur upp fyrir erlendum fréttamanni hversu oft hefur verið kosið síðan 2009.

Brátt mun höndin ein ekki duga.

En fleira liggur að baki. Gengi Bjartrar framtíðar hefur ekki verið góð í könnunum. Stór fyrirboðaskjálfti varð þegar Theódóra Þorsteinsdóttir tilkynnti brotthvarf af alþingi. Forsætisráðherra hlúði ekki að "litla flokknum", og því var kveikurinn stuttur. 

Engin ríkisstjórn hefur ríkt jafn stutt. Engin ríkisstjórn með jafn lágt fylgi. 

Ríkisstjórnir hafa fengið heiti eftir atvikum. Ein hét -ríkisstjórnin sem sprakk í beinni útsendingu-. 

Þessi gæti fengið heitið -ríkisstjórnin sem sprakk á einni undirskrift-. 

Ef kosið verður, er fróðlegt hvaða mál verða í deiglunni.

Leyndarhyggja?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni