10 skoðanir sem ég höndla mjög illa
Mér fallast stundum hendur yfir skoðunum sumra samborgara minna. Sumar þeirra byggjast á misskilningi en aðrar ekki svo mikið held ég. Stundum langar mig að gráta yfir því hvað fólk er óupplýst en oft verð ég líka bara reið og pirruð þar sem ég veit að sú er ekki alltaf raunin. Eða hvað? Það helsta svona sem er að lama mig þessa dagana má finna í eftirfarandi lista sem nota bene er EKKI tæmandi. Það er í alvöru til fólk sem:
1. Telur að þeir sem séu með ofurlaun séu það eingöngu vegna þess að þeir séu svo MIKLU DUGLEGRI að vinna en hinir sem eru með lægri laun.
2. Telur að þeir sem séu með hærri laun, séu ALLTAF með meiri menntun, meiri ábyrgð og meiri vinnu á bakinu.
3. Telur hagsmunagæslu og þöggun á ákveðnum hlutum í fjölmiðlum á kostnað málefnalegrar umræðu og almannahagsmuna EKKI vera spillingu.
4. Heldur að femínismi sé barátta á MÓTI karlmönnum og snúist um að segja að þeir séu vondi kallinn og að allt sé þeim að kenna.
5. Heldur með því að berjast sérstaklega gegn einni tegund af ofbeldi sé maður að segja að allt annað ofbeldi sé bara í fínu lagi.
6. Trúir því að ástæðan fyrir ofurlaunum stjórnarsetumanna lífeyrissjóða og víðar sé EINGÖNGU sú að það þurfi svo rosalega gott og hæft fólk í stöðuna (greinilegt að það nægir bara vont fólk til að kenna börnum þeirra eða hjúkra ömmu þeirra og afa).
7. Heldur að það að fræða fólk um fjölbreytileika mannlífsins sé hvatning til nauðgana og barnaníðs.
8. Segir að það sé fáránlegt að halda því fram að mannfólkið og hegðun þess í heiminum hafi nokkuð með loftslagsbreytingar að gera af því að það hafi oft verið loftslagsbreytingar í gegnum aldirnar.
9. Heldur að kynjafræði og/eða hineginfræðsla snúist um EITTHVAÐ annað en fræðslu til að sporna gegn fordómum.
10. Telur vinnandi fólk ábyrgt fyrir þeim skaða sem verkfall þeirra í baráttu fyrir mannsæmandi launum veldur í samfélaginu.
Þurfti bara aðeins að fá að orða þetta upphátt. Takk fyrir mig. Góðar stundir.
Athugasemdir