Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.

Hvar eru konurnar í byggingariðnaði?

Hvar eru konurnar í byggingariðnaði?

Umræðan um jafnt kynjahlutfall í starfsgreinum hefur farið vaxandi undanfarin ár og því ber að fagna. Íslendingar hafa náð góðum árangri í þessum efnum þó enn sé langt í land. Mér finnst mikilvægt að allir fái sömu tækifæri til þess að mennta sig og að fólk geti starfað við það sem það hefur áhuga á. Þannig fáum við sem mest út úr hverjum og einum og byggjum þar af leiðandi upp gott samfélag.


Mikil bylting hefur orðið á atvinnumarkaði, karlar fara í „konustörf“ og konur fara í „karlastörf“. Ein af þeim stéttum sem lítið hefur breyst í áraraðir hvað þessi mál varða er byggingariðnaðurinn. Í dag er byggingariðnaðurinn skipaður nær eingöngu körlum. Sumir myndu segja að kvenfólk ætti ekki heima í þessum greinum. Ástæðan sem sumir gefa er að þetta starf sé einfaldlega of mikil erfiðisvinna.


Þessu er ég aftur á móti ósammála. Sjálfur hef ég starfað í byggingariðnaði og séð marga karla sem hafa nákvæmlega enga líkamlega yfirburði yfir margar konur. Fólk er misjafnt og finnst mér þetta vera mikil einföldun á málinu. Hins vegar gæti ég trúað því að konur hafi einfaldlega ekki áhuga á því að sinna þessum störfum. Ein möguleg ástæða þess gæti verið sú að þær geri ráð fyrir því að verða fyrir fordómum innan þessara stétta. Gamlir karlar með neftóbak í kaffiskúrum að skammast út í allt og alla hljómar ekkert svakalega vel.

Hugsanlega er hægt að finna ástæðuna í samfélagsbyggingunni sjálfri. Að þrátt fyrir þessar miklu breytingar þá séum við enn föst í þessu gamla móti kynjahlutverka.

Gamlar staðalímyndir verða að fjúka.

Í byggingariðnaði er aragrúi af ótrúlega kláru og flottu fólki sem hefur áhuga og metnað fyrir því sem það gerir.  Byggingariðnaðurinn hefur gott af því að fá fleiri konur inn. Það myndi gefa þessum störfum ferskan blæ sem ég held að sé nauðsynlegur fyrir þessar greinar.

Þetta eru fjölbreytt, vel launuð og skemmtileg störf, þar sem verkvit og þekking blandast saman. Ég hvet konur til þess að kynna sér þennan starfsvettvang fyrir alvöru. Á sama tíma hvet ég iðnaðarmenn að taka þeim konum fagnandi sem munu slást í för við að viðhalda og byggja upp mannvirki okkar Íslendinga.

Höfundur hefur handlangað í múrverki og er lærður málari og byggingafræðingur.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu