Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Ég er ekki með sjúkdóm

Um sex þús­und Ís­lend­ing­ar eru fædd­ir með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kyn­ein­kenni og eru þar af leið­andi in­ter­sex, þó að marg­ir þeirra gang­ist ekki við þeirri skil­grein­ingu. Ein þeirra sem gengst stolt við skil­grein­ing­unni er Bríet Finns­dótt­ir. Hún hef­ur frá barnæsku lagt sig fram við að kenna öðr­um hvað það þýð­ir að vera in­ter­sex.

Ég er ekki með sjúkdóm
Ekkert leyndarmál Sú staðreynda að Bríet er intersex hefur aldrei verið leyndarmál. Þegar hún var lítil sá mamma hennar til þess að kennarar hennar og skólafélagar vissu af því. Þegar Bríet var tíu ára stóð hún fyrst upp fyrir framan bekkinn sinn sjálf og hélt kynningu á því, hvað það þýðir að vera intersex. Mynd: Gunnar Gunnarsson

Einstaklingar sem fæðast á Íslandi og hafa ódæmigerð líffræðileg kyneinkenni kunna að sæta mismunun og tilraunum til að laga líkama þeirra að viðteknum „normum“, ýmist með skurðaðgerðum eða hormónameðferð. Þetta leiðir rannsókn mannréttindasamtakanna Amnesty International í ljós en hún byggist meðal annars á samtölum við intersex einstaklinga fædda hér á landi. Ein þeirra sem skýrsluhöfundar ræddu við er Bríet Finnsdóttir sem fæddist á Egilsstöðum fyrir rúmlega 22 árum.

Bríet er náskyld einni þekktustu intersex-baráttumanneskju landsins, Kitty Anderson, formanni Intersex Ísland, sem þær stofnuðu í sameiningu. Þær eru systradætur. Þegar Bríet fæddist kom í ljós að hún var með ódæmigerð kyneinkenni, alveg eins og frænka hennar sem fæddist nokkrum árum fyrr. Mamma hennar ákvað strax þá að taka mið af reynslu systur sinnar og Kittyar. Dóttir hennar, Bríet, skyldi ekki þurfa að burðast um með leyndarmál, enda þótti henni engin ástæða til. „Kitty frænka mín hafði átt í miklum erfiðleikum með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu