Þórður Snær Júlíusson
Er það að gefa að minnsta kosti hálfan milljarð góð meðferð opinbers fjár?
Fyrrverandi ríkislögreglustjóri með sterk flokkspólitísk tengsl tók ákvörðun um að gera vel við nána samstarfsmenn sína rétt áður en þeir fóru á eftirlaun og rétt áður en hann þurfti að semja um starfslok. Kostnaðurinn við þessa ákvörðun er að minnsta kosti rúmlega 500 milljónir króna og skattgreiðendur bera hann. Tveir núverandi ráðherrar voru kolrangstæðir í yfirlýsingum sínum um málið að mati Hæstaréttar og núverandi dómsmálaráðherra getur ekki fengið sig til að biðja um rannsókn á því.