Sú hugmynd að Donald Trump gæti orðið forseti Bandaríkjanna vekur nú æ meiri skelfingu um víða veröld, enda mála sannast að hann virðist alls ekki fallinn til að handleika þau völd sem fylgja embættinu. Hann yrði versti forseti í sögu Bandaríkjanna, segja margir óhikað.
En við hverja væri hann þá að keppa? Alls hafa 43 karlar gegnt embætti Bandaríkjaforseta og segir sig sjálft að þar er misjafn sauður í mörgu fé. Sagnfræðingar eru almennt sammála um að á toppnum tróni Abraham Lincoln, sem leiddi Bandaríkin gegnum hina erfiðu borgarastyrjöld 1861–1865 og batt endi á þrælahaldið, sem orðið var opið pestarsár í bandarísku samfélagi. Oftast er Franklin D. Roosevelt settur í annað sætið á listum sagnfræðinga yfir bestu forsetana, en hann snerist til varnar í kreppunni miklu á fjórða áratugnum og kenndi Bandaríkjamönnum að ekkert sé að óttast nema óttann sjálfan. Þann lærdóm er Donald Trump nú sem óðast að reyna …
Athugasemdir