Við vissum það alveg. Já, við vissum það.
Við vissum alveg að Guggan var ekki gul þegar allt kom til alls.
Og sægreifunum er skítsama um íbúa í hinum dreifðu byggðum.
Skítsama.
Nú hefur HB Grandi sannað það eina ferðina enn.
„Samfélagsleg ábyrgð“ er bara brandari á ársþingum LÍÚ eða hvað þau samtök heita núna.
Allir hlæja hraustlega þegar þessi orð eru nefnd.
Og nú heyri ég í fréttum að útgerðarfyrirtækjum dugi ekki að skilja íbúa bæjanna út um land eftir á köldum klaka.
Nú eru sægreifarnir að íhuga að flytja landvinnsluna til útlanda.
Til einhverra láglaunasvæða.
Svo þeir missi örugglega ekki krónu úr sínum aski.
„Samfélagsleg ábyrgð, hahahaha! Hafiði heyrt annan?!“
En við þessari græðgi, við þessari skefjalausu grægði og skeytingarleysi sægreifanna um allt annað en þeirra eigin auðæfi - er reyndar til eitt ráð.
Tökum kvótann af sægreifunum.
Það á að heita að við eigum þessa auðlind.
(Þótt sægreifunum hafi hingað tekist að stoppa stjórnarskrá þar sem það er áréttað.)
Við getum tekið auðlindina af sægreifunum.
Það þarf auðvitað kosningar til - því pólitískur armur sægreifanna, félag uppí Valhöll sem heitir Sjálfstæðisflokkurinn, hann mun aldrei fallast á að andað verði á sægreifana.
En við getum alveg krafist kosninga.
Látum ekki fara svona með okkur.
Athugasemdir