Hverjir eru hættulegir hér í okkar heimshluta?
Hverjir ýta undir misrétti, hverjir stuðla vísvitandi að ójöfnuði, hverjir maka krókinn fyrir hið ofsaríka eitt prósent meðan alþýðan situr á hakanum, niðurlægð og beygð?
Hverjir ýta undir þá stéttaskiptingu sem stefnir í að verði ámóta og mest og ruddalegust hefur þekkst í veröldinni?
Hverjir ýta undir þjóðernisgorgeir og togstreitu svo við sjáum ekki veisluna sem hinir ríku halda sjálfum sér, hverjir hvetja til tortryggni gegn fólki á faraldsfæti og flóttamönnum?
Hverjir vilja láta reisa múra milli manna og hverjir kjósa Donald Trump?
Eru það vinstri menn? Eru þeir það sem við þurfum að varast?
Nei - það eru hægri menn sem bera ábyrgð á þessu öllu.
Ekki hver einn og einasti hægri maður, vissulega ekki.
En það eru skoðanabræður og –systur hægrimanna sem boða mestu hætturnar nútildags.
Þess vegna skulum við vera vinstri menn - og stolt af því!!
Athugasemdir