Júlíus Caesar var myrtur í Rómaborg fyrir 2061 ári. Hann var í reynd orðinn einræðisherra í öllu Rómaveldi en lýðveldissinnar kunnu því illa. Einkum óttuðust þeir að hann tæki sér formlegt konungsnafn, því þá væri lýðræðið endanlega úr sögunni.
William Shakespeare skrifaði leikrit um örlög Caesars og frumsýnd í London fyrir 418 árum. Leikritið fer heldur mjúkum höndum um Caesar en snýst einkum um sálarstríð morðingjans Brútusar. Hann telur sér skylt að vega Caesar til að bjarga lýðveldinu og heiðri Rómar en á móti kemur vinátta hans við einræðisherrannn.
Núna, vorið 2017, þá eru hins vegar tvö risafyrirtæki í Bandaríkjunum - flugfélagið Delta Air Lines og Bank of America - að svipta hið virta leikfélag Public Theatre í New York umsömdum fjárstuðningi, vegna þess að leikfélagið hefur sett upp sýningu á þessum gamla leik Shakespeare um tvö þúsund ára gamlan einræðisherra.
Og ástæðan: Jú, félögunum tveimur þykir verkið vera móðgandi í garð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef New York Times, þá liggur í augum uppi að Caesar sýningarinnar á að vekja hugrenningatengsl við Donald Trump. Og vegna þess að þessi persóna er drepin á sviðinu - annaðhvort væri nú, Julius Caesar er alltaf drepinn í þessu leikriti! - þá finnst fyrirtækjunum tveimur að sýningin sé „smekklaus“ og það meira að segja svo smekklaus að þau vilja ekki leggja nafn sitt við hana.
Sýningin er „ekki til marks um gildi Delta Air Lines“ segir flugfélagið.
Sem sé: Er Júlíus Caesar hefði verið drepinn í rómverskri brynju, eða látinn vera mafíós eða eigandi bifvélarverkstæðis eða til dæmis forstjóri pylsusölu og einhver Brútus talið nauðsynlegt að drepa hann því hann væri orðinn of yfirþyrmandi í pylsusölunni (þetta eru allt dæmi um hvernig Caesar hefur verið túlkaður, og myrtur) - þá hefði það verið mjög í samræmi við gildi Delta Air Lines.
Og Bank of America hefði ekki rótað sér þó Júlíus Caesar hefði beinlínis verið skorinn í búta á sviðinu.
En af því Caesar er í þessu leikriti með gula hárkollu, í jakkafötum og með langt rautt bindi, þá er þetta voða ósmekklegt.
Og kapítalisminn kippir að sér hendinni.
Hérna má svo lesa frásögn breska blaðsins Guardian um sýninguna, þar sem kemur fram að stórfyrirtækin virðast alls ekki hafa skilið þessa sýningu, því þótt þar sé gert stólpagrín að hinum Trump-lega Caesar á sviðinu, þá fari ekkert á milli að aðstandendum sýningarinnar þykir sú „lausn“ að drepa einræðisherrann alröng og skelfileg.
Athugasemdir