Undir venjulegum kringumstæðum ætti ekki að vefjast fyrir smáflokki með fjóra þingmenn að taka þátt í ríkisstjórn.
Undir venjulegum kringumstæðum nánast hver einasti flokksmaður telja það sjálfsagt mál og líkastil lífsspursmál fyrir flokkinn.
Sem ella gæti þurrkast út hvenær sem væri.
En það tók Bjarta framtíð marga klukkutíma að komast að niðurstöðu um þann stjórnarsáttmála sem Óttarr Proppé er búinn að vera að koma saman ásamt Benedikt Jóhannssyni og Bjarna Benediktssyni.
Og þegar greidd voru atkvæði í stjórn Bjartrar framtíðar, þá sagði 51 já, einn sat hjá og 18 sögðu nei.
72 prósent sögðu já - meira var það nú ekki.
Þannig höktir Engeyjarstjórn Bjarna Benediktssonar úr startholunum.
Og það þótt Óttarr Proppé hafi bersýnilega lagt pólitískt líf sitt að veði við að fá sáttmálann samþykktan.
Hann lét sig meira að segja hafa það að segja að lygar Bjarna Benediktssonar um skattaskjólsskýrsluna væru ekki annað en „leiðindaklúður“ en að öðru leyti væri allt eins og best yrði á kosið.
Sem er mjög dularfullt, ekki síst í ljósi þess að Björt framtíð var beinlínis stofnuð utan um heiðarleg vinnubrögð, en svo flýgur hver sem hann er fiðraður.
Íkornar líklega líka.
En það hlýtur að vera óskemmtilegt fyrir nýjan forseta Íslands, sem hefur farið svo dæmalaust vel af stað, að fyrsta ríkisstjórn hans þurfi endilega að vera undir forsæti manns sem uppvís hefur orðið að lygum í aðdraganda stjórnarmyndunar.
Athugasemdir