Spæjarinn Sherlock Holmes er einhver vinsælasta og langlífasta bókmenntapersóna sögunnar. Enn eru bækur um Holmes gefnar út í stórum upplögum, og kvikmyndir og sjónvarpsþættir byggðar á ævintýrum hans streyma út.
Og áhuginn á Holmes og höfundi hans Arthur Conan Doyle sýnir engin merki þess að vera að hjaðna.
Nýlega gaf rithöfundurinn Michael Sims út enn eina bókina um Holmes og höfund hans, Arthur & Sherlock, og samkvæmt ritdómara Sunday Times hefur honum tekist að grafa enn upp lítt þekktar staðreyndir um félagana, höfundinn og sköpunarverkið.
Þar kemur til dæmis fram að upphaflega átti Sherlock Holmes að heita Sherrington Hope, og hinn tryggi hjálparkokkur hans átti að heita Ormond Sacker.
En svo fann Conan Doyle (sem hét raunar bara Doyle að eftirnafni en tók millinafn upp sem eftirnafn) nafnið Sherlock, meðal annars í sögum eftir rithöfundinn Sheridan La Fanu, og lagði þá Sherrington-nafnið á hilluna.
Og hann áttaði sig líka á að hinn jarðbundni skynsami hjálparkokkur gat ómögulega heitið Ormond Sacker. Hann varð að heita mun einfaldara nafni og niðurstaðan varð
John Watson.
Sem betur fer, segir ritdómari Sunday Times.
„Ormond Sacker hefði verið skelfilegt. Það hljómar eins og svikahrappur frá Kansas City.“
Athugasemdir