Wismar heitir rúmlega 40 þúsund manna smáborg á Eystrasaltsströnd Þýskalands. Byggð þar er gömul og hverfist um höfnina, en annars er Wismar núorðið rólegheitastaður.
Sumir ferðamenn fróðir um sögu síðari heimsstyrjaldar reka upp stór augu þegar þeir aka frá smábátahöfninni í Wismar og suður Rudolf-Breitscheid-stræti í átt að Lübsche-stræti sem liggur svo inn í miðborgina. Þegar þeir eru hálfnaðir að Lübsche-stræti, þá verður nefnilega fyrir þeim á hægri hönd þvergata ein, hvorki breið né tilkomumikil - hún er nákvæmlega 350 metra löng áður en hún skiptir um nafn og heitir þá Zirower Weg.
En það er nefnilega einmitt nafn þessarar 350 metra löngu götu sem hinum sögufróðu ferðamönnum hlýtur að þykja merkilegt.
Hún heitir nefnilega Bruno Tesch Straße. Stræti Bruno Tesch. Og spyrji ferðamenn eftir hverjum gatan heiti, og fái það svar að hún heiti eftir einhverjum frægum kalli frá því á dögum nasista, þá er líklegt að þeim hætti að lítast á blikuna.
Það vita nefnilega margir að Bruno Tesch var sá þýski efnafræðingur sem þróaði Zyklon-B eiturgasið sem nasistar notuðu til að drepa fólk í útrýmingarbúðum sínum í síðari heimsstyrjöld.
Bruno Tesch fæddist árið 1890 og upphaflega vann hann að þróun Zyklon-B sem skordýraeiturs. Hann stofnaði svo fyrirtæki sem dreifði eitrinu í gasformi. Þegar Tesch frétti að nasistar væru farnir að drepa Gyðinga í stórum stíl stakk hann upp á því að þeir notuðu gasið hans. Það væri mun heppilegra til að drepa fólk í stórum stíl heldur en að skjóta alla.
Zyklon-B var tekið í notkun í útrýmingarbúðunum og notað til að drepa allstóran hluta af þeim fórnarlömbum nasista sem myrt voru í helförinni.
Eftir stríðið var Bruno Tesch handtekinn af hernámsyfirvöldum bandamanna, sem sigrað höfðu Þjóðverja í stríðinu. Hann reyndi að halda því fram að hann hefði ekkert vitað um hvað nasistar gerðu við gasið sem þeir keyptu af honum - en við réttarhöld voru lagðir fram pappírar sem sýndu að Tesch hafði ekki einungis vitað af því, heldur hafði hann sjálfur boðið fram eitrið sitt.
Bruno Tesch var dæmdur til dauða fyrir aðild að glæpum gegn mannkyni og hengdur 16. maí 1946.
Og af hverju er í ósköpunum er Bruno-Tesch-stræti þá að finna í smáborginni Wismar?
Jú - þótt ekki geti nafnið Bruno Tesch talist algengt, þá vill svo til að alnafnar tveir báru þetta nafn á tímum nasista, og gatan í Wismar er nefnd eftir þeim Bruno Tesch sem EKKI fann upp Zyklon-B.
Þessi Bruno Tesch fæddist árið 1913. Hann var af alþýðufólki, móðir hans var reyndar ítölsk, en laust fyrir tvítugt hóf hann að læra pípulagnir, en mikið atvinnuleysi iðnaðarmanna kom í veg fyrir að hann lyki námi.
Bruno var þá orðinn kommúnisti og ákafur andstæðinga nasista, sem farnir voru að hafa sig æ meira í frammi í Þýskalandi.
Í júlí 1932 skipulögðu nasistar skrúðgöngu gegnum verkamannahverfið Altona í Hamborg, þar sem Bruno Tesch bjó þá. Hann og aðrir kommúnistar einsettu sér að stöðva gönguna og til blóðugs bardaga kom. Fjórir stormsveitarmenn nasista féllu í valinn og sömuleiðis 16 vegfarendur sem komu of nálægt slagsmálunum.
Rannsókn þykir benda til þess að flestir hinna „óbreyttu borgara“ hafi fallið í kúlnahríð lögreglunnar, sem fór á taugum við slagsmál nasistanna og kommúnista. Lögreglumenn eru sagðir hafa skotið af byssum sínum nánast af handahófi inn í mannfjölda.
Yfirvöld handtóku hins vegar Bruno Tesch og þrjá aðra og sökuðu þá um að hafa skotið fólkið. Gekk þó mjög erfiðlega að sanna að Bruno Tesch hefði verið með byssu í slagsmálunum, hvað þá heldur skotið að mannfjöldanum.
Eftir að nasistar náðu völdum í Þýskalandi á útmánuðum 1933 var gerð gangskör að því að ljúka réttarhöldunum yfir Bruno Tesch og félögum. Þeir voru allir dæmdir til dauða og Hermann Göring, sem fékk náðunarbeiðni fjórmenninganna til meðferðar, neitaði að náða þá.
Bruno Tesch og félagar hans þrír voru svo hálshöggnir í Altona 1. ágúst 1933. Um var að ræða fyrstu aftökurnar í Þýskalandi eftir að Hitler og nasistar náðu völdum.
Þær áttu eftir að verða fleiri - meðal annars með dyggri aðstoð Bruno Tesch.
Efnafræðingsins Bruno Tesch.
Athugasemdir