Við höfum leyft öfga- og æsingamönnum að ráða allri umræðu alltof lengi, og erum farin að taka alltof mikið tillit til þeirra.
Þegar menn ráðast á Evrópusambandið, þá segjum við sem viðurkennum kosti þess: „Ja, Evrópusambandið er vissulega mjög gallað fyrirbæri, en samt ...“
Og þegar við reynum að andæfa Donald Trump, þá er orðinn viss passi að segja:
„Ja, Hillary Clinton er að vísu alveg kolómöguleg, en hún er þó aðeins skárri ...“
Með þessu færist víglína umræðunnar óhjákvæmilega æ lengra yfir á heimavöll æsingamannanna.
Við endum á því að vera sífellt að biðjast afsökunar.
Hættum þessu!
Verum stolt yfir að styðja það sem skárra er í veröldinni, en biðjumst ekki endalaust afsökunar á því.
Athugasemdir