Þú veist líklega ekki hver ég er. Þú manst samt kannski eftir fólki sem mótmælti ítrekað fyrir framan Stjórnarráðið vorið 2003 vegna þess að þið Halldór gerðuð okkur Íslendinga samseka í Íraksstríðinu. Ég var þar. Ætli þú hafir ekki bara hlegið að okkur og kallað okkur mussuhippakomma eða eitthvað álíka hnyttið. En við höfðum síðan bara svo innilega rétt fyrir okkur.
Í dag sé ég að þú hæðist á ósmekklegan hátt að Íraksstríðinu. Það kemur í kjölfar þess að þú hefur reynt að höfða til hræðslu kjósenda við múslima. Þetta kemur kannski ekki á óvart. Þú virðist ekki telja líf múslima mikils virði. Morgunblaðið þitt hefur líka verið gjarnt á að birta stjörnuvitlausar greinar um múslima sem byggjast ekki á heiðarlegri gagnrýni heldur ýkjum, alhæfingum og fordómum þeirra sem þær rita. En maður hefði samt vonað að þegar kemur að flóttamannavandanum í dag þá hefðir þú vit á að þegja.
Það er svo einfalt að ISIS hefði aldrei orðið til án Íraksstríðsins. Þú átt því allavega smávægilega sök á flóttamannavanda dagsins í dag ásamt mannfallinu sem hefur orðið í Írak og Sýrlandi. Auðvitað kemur meira til og ég vil ekki eiga sök á því að blása egóið þitt meira upp.* En þú ert eins og fiðrildið sem blakaði vængjunum og gerði hlutina örlítið verri en þeir þurftu að verða. Verst er að þú gerðir okkur samsek.
Manstu hvers vegna þið Halldór voruð svona viljug peð í höndum George W. Bush? Ég held að það hafi aðallega verið vegna þess að þið vilduð bjarga herstöðinni í Keflavík. Það fór ekki eins og þið vilduð. Strax eftir þingkosningar vorið 2003 var svo tilkynnt að það ætti að skera niður á herstöðinni og síðan var henni bara lokað nokkrum árum seinna. Þið selduð okkur frekar ódýrt. Mér liði persónulega reyndar ekkert betur ef við hefðum grætt eitthvað á þessu siðlausa stríði en mig grunar að þér hafi sárnað.
Ég á vini sem halda því fram að við ættum bara aldrei aftur að hlusta á fólk sem studdi Íraksstríðið. Ég er ekki alveg sammála vegna þess ég þekki fólk sem studdi stríðið á sínum tíma og hefur áttað sig á að það var blekkt. En fólk sem hefur ekki ennþá séð hvílík mistök þetta stríð var hefur augljóslega ekki burði til þess að taka þátt í vitrænni umræðu.
Þá kem ég aftur að flóttamannavanda dagsins í dag sem þú ert að reyna að græða atkvæði á. Þú ættir að skammast þín. Þitt eina innlegg í flóttamannaumræðuna ætti að vera að mæta hverjum einasta flóttamanni og hælisleitanda frá Sýrlandi eða Írak á flugstöðinni með auðmjúkri afsökunarbeiðni. Þeir eiga það inni hjá þér.
* Það má nefna að loftslagsbreytingar af mannavöldum eru líklegasti sökudólgurinn fyrir uppskerubresti í Sýrlandi. Uppskerubresturinn er síðan ein af ástæðum borgarastríðsins. En þú, kæri Davíð, hefur einnig reynt að tala niður vísindin á bak við loftlagsbreytingar.
Athugasemdir