Ný skýrsla, sem stofnun að nafni Quilliam í London hefur látið gera, hermir að í röðum „Íslamska ríkisins“ fari fram jafnvel enn viðurstyggilegri og útbreiddari þjálfun barna en áður hefur verið talið. Börn eru þjálfuð til að gerast njósnarar, prédikarar, hermenn, böðlar og sjálfsmorðssprengjufólk.
Skýrsla Qulliam er byggð bæði á áróðursefni frá „Íslamska ríkinu“ sjálfu og upplýsingum úr innsta hring samtakanna bæði í Sýrlandi og Írak. Vefsíða Guardians komst í skýrsluna, sem verður lögð formlega fram á miðvikudaginn kemur, og hér eru þýdd og endursögð nokkur atriði úr fregn Guardians af skýrslunni.
Í skýrslunni segir að samtökin „leggi þunga áherslu á að innræta börnum öfgafullt kennsluefni og að uppfóstra þau sem hryðjuverkamenn. Núverandi kynslóð hryðjuverkamanna lítur á þessi börn sem betri og miskunnarlausari stríðsmenn en þeir eru sjálfir, því í stað þess að börnin hafi snúist til róttækrar hugmyndafræði, eins og þeir, þá hafi þau fæðst inn í hana eða alist upp í henni frá mjög ungum aldri“.
Skýrsluhöfundar fullyrða að allt að 50 börn sem fæddust í Bretlandi séu nú að alast upp á yfirráðasvæði „Íslamska ríkisins“. Þangað hafa flykkst allt að 30.000 útlendingar til að berjast fyrir samtökin og meðal þeirra eru rúmlega 800 Bretar og sumir þeirra hafa sem sé haft börn sín með sér.
Þá segir:
„Mestum áhyggjum veldur að Íslamska ríkið er nú að undirbúa stríðsmenn sína með innrætingu mjög ungra barna í skólum og að venja þau við ofbeldi með því að horfa á opinberar aftökur, horfa á myndbönd samtakanna á fræðslumiðstöðum og láta þau hafa vopn að leika sér að. Ekki nóg með það, heldur eru börn líka hvött til að leika sér að höfðum þeirra sem samtökin hafa látið hálshöggva. Drengir eru oft látnir hafa höfuðkúpur til að nota sem fótbolta.
Fjögurra ára drengur var á nýlegu myndbandi samtakanna sýndur sprengja í loft upp bíl þar sem fjórir fangar voru fastir. Alls hafa tólf barnsungir böðlar komið fram í myndböndum samtakanna.
Fyrirmyndir „Íslamska ríkisins“ eru taldar vera til dæmis Hitlersæskan í Þýskalandi, barnahersveitir Charles Taylors í Líberíu á síðasta áratug 20. aldar og æskulýðssveitir Saddams Husseins í Írak.
Af þeim sökum er ekki unnt að kenna trúarbrögðunum íslam í sjálfu sér um hugarfarið sem ríkir meðal stríðsmanna „Íslamska ríkisins“.
Adolf Hitler var kaþólskur Austurríkismaður. Charles Taylor var líka kristinn og menntaður í Massachusetts.
Í fræðslumiðstöðvunum þar sem börnunum er kennt að drepa í nafni samtakanna, þar er ekki farið á nokkurn hátt í felur með að hvarfli að einhverjum krakka að mótmæla einhverjum skipunum kennara sinna þá verði þau húðstrýkt, pyntuð og þeim nauðgað.
Athugasemdir