Úrslitakeppnin fyrir lokakeppni HM stendur nú sem hæst og Íslendingar eru í þokkalegri stöðu í sínum riðli í Evrópukeppninni eftir sigur á Kósóvó, þótt væntanlega hafi ýmsir áhyggjur af því hve harðunninn sá sigur var.
En leikurinn varð til þess að það rumskaði í mér fótboltafréttamaður og ég fór að kanna stöðu mála í öðrum heimshlutum.
Hvaða lið er líklegt að flaggi í Rússlandi á næsta ári?
Í Asíu-keppninni stendur nú yfir þriðja umferð og er keppt í tveimur riðlum, sex lið eru í hvorum riðli og fara tvö efstu liðin beint á HM. Sex leikjum af tíu er lokið. Í A-riðli virðist fátt geta komið í veg fyrir framgang Írans sem hefur unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. Íran stýrir sem fyrr Carlos Queiroz fyrrum stjóri Real Madrid og lengi aðstoðarmaður Alex Ferguson hjá Manchester United.
Íranir hafa stundum átt sterkari einstaklinga en nú, en hins vegar virkar lið þeirra pottþétt og illsigranlegt. Helsti markaskorarinn er Reza Ghoochannejhad sem spilar með Heerenveen í Hollandi. Hann ólst raunar upp í Hollandi og spilaði með unglingalandsliðum þar. Helsti efnispiltur Írana er hins vegar Sardar Azmoun sem spilar með Rostov í Rússlandi. Hann er nýorðinn 22ja ára.
Suður-Kórea er í öðru sæti í A-riðli. Lið þeirra er oft mistækt en virðist nú á góðri leið upp á einn af öldutoppum sínum undir stjórn þess fræga kappa Uli Stielike. Suður-Kóreumenn eiga hins vegar í harðri keppni við Úsbekistan og Sýrland um annað sætið.
Úsbekar þrá ekkert heitar en komast á HM og hafa stundum virst á góðri leið með að verða verulegt afl í Asíuboltanum undanfarin ár, en virðist enn skorta stöðugleika til að komast alla leið.
Og svo skortir þá hið augljósa: Öfluga leikmenn.
Sýrlendingar spila heimaleiki sína í Malasíu af ástæðum sem ekki ætti að þurfa að útlista. Deildarkeppni í fótbolta hefur þó farið fram í landinu öll árin síðan borgarastyrjöldin hófst og um það bil helmingur leikmanna spilar heima í Sýrlandi en aðrir í nágrannaríkjum, ekki síst Írak og Jórdaníu. Aðalmarkvörður liðsins, Ibrahim Alma, spilar með liðinu Al-Ittihad í hinni hrjáðu borg Aleppo.
Þjálfari Sýrlendinga er heimamaðurinn Ayman Hakeem.
Í B-riðli Asíukeppninnar keppa Sádi-Arabía og Japan um efsta sætið.
Sádar eru undir stjórn Bert van Marwijk sem var landliðsþjálfari Hollands 2008-2012. Allir leikmenn Sáda nema einn spila í heimalandi og eru því lítt þekktir annars staðar.
Japanir hafa oft orðið fyrir vonbrigðum með gengi liðs síns á HM undanfarna áratugi. Þeim stýrir nú Bosníumaðurinn Vahid Halilhodzic sem hefur marga hildi háð víða um veröld og stýrði til dæmis skemmtilegu og baráttuglöðu liði Alsír í 16 liða úrslitin á HM 2014. Japanir eiga eins og venjulega nokkra leikmenn sem spila með öflugum liðum í Evrópu, þótt engir þeirra séu alveg í fremstu röð, og ef Halilhodzic nær að hrista upp í þeim baráttukraftinn, þá ættu Japanir að komast fyrirhafnarlítið á HM.
Í þriðja sæti B-riðils eru Ástralir sem gert hafa alltof mikið af jafnteflum til þessa. Ef þeir fara að vinna leiki, þá gætu þeir þó ógnað Sádum og Japönum. Þá eru Sameinuðu furstadæmin heldur ekki alveg úr leik.
En í bili eru það sem sé Íranir, Suður-Kóreumenn, Sádar og Japanir sem eru á leið beint til Rússlands og kæmi sú niðurstaða vissulega ekki á óvart.
Liðin sem verða í þriðja sæti í Asíuriðlunum tveimur (eins og er Úsbekistan og Ástralía) munu spila heima og heiman um réttinn til að spila um sæti á HM við liðið sem verður í 4. sæti í keppni Mið- og Norður-Ameríku.
Þar er staðan sú að nú stendur yfir fimmta og síðasta umferð í mjög langri og flókinni keppni og þar keppa sex ríki um þrjú og hálft sæti. Eftir þrjár umferðir eru Mexíkóar efstir, Kostaríkamenn númer tvö og Panama er í þriðja sæti. Eftir töp í tveim fyrstu leikjunum rústuðu Bandaríkjamenn Hondúras 7-0 í þriðju umferð og munu áreiðanlega komast á HM eins og venjulega. Í raun eiga engin lið auðveldari leið á HM en Mexíkó og Bandaríkin; það þarf beinlínis stórslys til að þau komist ekki auðveldlega í lokakeppnina.
Nær öruggt má telja að Mexíkó, Bandaríkin og Kostaríka fari áfram en Panama keppni síðan við 5. Asíuríkið um sæti á HM.
Í Eyjaálfu-keppninni er keppni á fullu en búið er að skrifa handritið. Nýja-Sjáland mun sigra Tahítí í úrslitaleik um sigur í keppninni og Nýja-Sjáland spilar svo um sæti á HM við liðið í 5. sæti í Suður-Ameríkukeppninni.
Þar standa mál þannig að 13 umferðum af 18 er lokið í hinni löngu og ströngu keppni sem Suður-Ameríkuríkin heyja.
Brasilía virðist hafa gengið í endurnýjun lífdaga með nýjum þjálfara sem tók við á síðasta ári, Tite heitir sá og undir hans stjórn rústuðu Brasilíumenn Úrúgvæ á útivelli í fyrradag. Niðurstaðan varð 4-1 og aðdáendur Liverpool munu gleðjast yfir því að bæði Coutinho og Firmino voru í byrjunarliði Brassa og spiluðu vel og lengi. Það var þó gamli Tottenham-maðurinn Paulinho sem blómstraði best og skoraði þrennu, en fjórða markið skoraði fyrirliðinn Neymar.
Paulinho spilar nú í Kína.
Brasilíumenn hafa unnið sjö leiki í röð í Suður-Ameríkukeppninni eftir að Tite tók við og eru farnir að gæla við að kannski sé heimsmeistaratitill í sjónmáli, aðeins ári eftir að þeir virtust búnir að sætta sig við að þeir væru ekki endilega lengur stórveldi í heimsfótboltanum.
Þrátt fyrir burstið gegn Brasilíu eru Úrúgvæar í öðru sæti í Suður-Ameríku og munu áreiðanlega komast á HM, sem og Argentínumenn sem eru í þriðja sæti. Lið þeirra virðist þó heldur þungt og hugmyndasnautt undir stjórn Edgardo Bauza. Leo Messi heldur liðinu gangandi en hin grimma framlína frá því fyrir nokkrum árum virðist ekki svipur hjá sjón. Tevez er hættur, Agueiro og Higuaín virka þungir og leiðinlegir og vilja helst ekki skora mörk, og sárlega skortir hugmyndaríka miðjumenn.
Á hverju ári telja Argentínumenn sig hafa fundið 2-3 arftaka Messis og jafn marga arftaka hins þokkafulla miðjumanns Juan Riquelme en þegar til kemur dugar enginn þeirra.
Kólumbía, Ekvador og Tjíle berjast svo um fjórða sætið í Suður-Ameríku sem dugar til farmiðla til Rússlands, og það fimmta sem gefur réttinn til að spila við Nýja-Sjáland um sæti á HM.
Afríkukeppnin er þar á vegi stödd að þriðja umferð er hafin. Þau 20 ríki sem eftir eru keppa nú í fimm fjögurra liða riðlum um fimm sæti á HM.
Eitt lið kemst sem sé áfram úr hverjum þessara riðla.
Aðeins tveimur umferðum er lokið og svo hefst keppni ekki aftur fyrr en í ágúst svo engin leið er enn að segja til um hvaða fimm Afríkuríki komast til Rússlands.
Ljóst virðist þó að í A-riðli muni Alþýðulýðveldið Kongó og Túnis berjast um sætið.
Í B-riðli hefur Nígería byrjað langbest en Kamerún og Alsír munu reyna að veita Ofur-Örnunum keppni.
Í C-riðli má reikna með að Fílabeinsströndin fari með sigur af hólmi ef ekkert mjög óvænt gerist, þótt lið þeirra virðist ekki jafn uppfullt af sterkum einstaklingum og fyrir nokkrum árum.
Í D-riðli getur allt gerst en þar eru í þrem efstu sætum Búrkina Fasó, Suður-Afríka og Senegal.
Í E-riðli verður að teljast nokkuð víst að hinir sterku Egiftar komist loks á HM í fyrsta sinn síðan 1990 en þeim hefur reyndar gengið frábærlega að klúðra möguleikum sínum til þessa. Nú hlýtur hins vegar að vera komið að þeim. Helstu keppinautarnir í riðlinum, Ganamenn, eru ekki með hýrri há um þessar mundir og egifski markaskorarinn Mohamed Salah hjá Roma virðist í fínu formi þessi misserin.
Það sem helst mælir gegn vonum um góðan árangur Egifta er að þeir hafa einhverra hluta vegna valið sér Héctor Cúper að þjálfara en hann er sérfræðingur í tvennu: Að tapa úrslitaleikjum og vera rekinn frá félögum.
En um Afríkukeppnina verður nánar fjallað síðar, rumski aftur í mér fótboltafréttamaðurinn.
Athugasemdir