Þótt oft kunni að þykja sem full ástæða hefði verið til að handtaka suma verstu Bandaríkjaforsetana, þá er raunin sú að aðeins einn þeirra hefur verið handtekinn meðan hann gegndi embætti.
Og það reyndar af svolítið óvæntri ástæðu.
Raunar er um að ræða einn af minnst þekktu Bandaríkjaforsetunum, Franklin Pierce, sem gegndi embætti 1853-1857.
Þegar Pierce var kosinn í embætti 1852 geisuðu gríðarlegar deilur millum Bandaríkjamanna um þrælahald. Deilurnar snerust raunar ekki síður um valdmörk einstakra ríkja Bandaríkjanna annars vegar og alríkisstjórnarinnar í Washington hins vegar.
Talið var að Pierce væri sáttfús miðjumaður og ætti að geta róað öldurnar.
Svo fór þó ekki. Pierce hallaði sér æ lengra í átt að málstað Suðurríkjanna, sem studdu þrælahald, og var engan veginn í stakk búinn til að sætta aðila.
Hann er raunar yfirleitt nefndur í hópi verstu forseta fyrir að hafa látið reka á reiðanum sem endaði með að borgarastyrjöld braust út 1861.
Raunar voru flokksmenn Pierce, Demókratar, honum svo gramir fyrir lin tök hans á forsetaembættinu að þótt hann sæktist eftir því að verða forsetaefni þeirra 1856 var honum hafnað. Engin önnur dæmi eru í bandarískri sögu um forseta sem hefur sóst eftir endurkjöri en verið neitað um útnefningu af flokki sínum.
En það er önnur saga sem kemur handtöku hans ekki við.
Þannig er mál með vexti að Pierce átti í vanda með ýmislegt í lífinu og þar á meðal voru hestar og brennivín.
Meðan hann var í hernum á sínum tíma varð frægt þegar hestur hans prjónaði og datt svo um koll svo Pierce var alllengi fastur undir honum. Þóttu viðbrögð Pierce við það tækifæri ekki sérlega hreystileg.
Ekki er ljóst hvort hann var fullur þegar þetta gerðist, en Pierce var alkóhólisti og átti mjög erfitt með að þola brennivín. Banamein hans reyndist að lokum vera skorpulifur.
Og það er altént talið fullvíst að Pierce hafi verið dauðadrukkinn þegar hann var einu sinni, skömmu eftir að hann varð forseti, handtekinn á götum Washington-borgar. Þá var hann í útreiðartúr á hesti sínum og var sakaður um að riðið á gamla konu sem var á leið yfir götu, og slasað hana.
Ekki er ljóst hversu illa slösuð gamla konan var. Yfirvöld Washington-borgar lögðu sig nefnilega fram um að þagga málið niður þegar þau uppgötvuðu hvaða mann knáir lögregluþjónar borgarinnar höfðu gómað í þetta sinn.
Saksóknari í borginni gaf skömmu síðar út lágróma yfirlýsingu um að Mr. Franklin Pierce yrði ekki dreginn fyrir dóm vegna „skorts á sönnunum“.
Athugasemdir