Upphafsmanneskja hugmyndarinnar um það að límmiðar geti haldið aftur af kynferðisbrotamönnum hefur blásið á gagnrýnina sem fram hefur komið á gjörninginn hennar. Jafnframt hefur hún kallað eftir því að gagnrýnendur setji fram betri hugmyndir. Fleiri hafa viðrað þessa kröfu og í status sem ég las á Facebook í gær var því haldið fram að límmiðarnir væru góð forvörn þangað til „Hildarnar“ og aðrir kæmu með önnur ráð. Ég er ein Hildanna. Og þetta er það sem við viljum.
Hugmynd sem allar „Hildarnar“ leggja fram er að halda ekki útihátíð ef líklegur fórnarkostnaður er nauðgun einhvers því hátíðarhaldarar sjá sér ekki fært að viðhalda gæslu.
„Hildarnar“ leggja til að í stað þess að markaðsdeild Secret Solstice finni nýjar leiðir til að kenna konum að láta ekki nauðga sér, að þau finni upp nýjar leiðir til að kenna mönnum að nauðga ekki.
„Hildarnar“ leggja til að fólk hætti að lifa í þeirri blekkingu að límmiði muni bjarga þeim frá einbeittum brotavilja. Að fölsk öryggiskennd er verri en engin.
„Hildarnar“ leggja til að Solstice bjóði Stígamótum, björgunarsveitinni, skátunum og aukinni lög- og öryggisgæslu á viðburðinn ef þau gera ráð fyrir að nauðgun sé óumflýjanlegur partur af þessari helgi.
„Hildarnar“ leggja til að foreldrar hætti að viðhalda samræðum um að „nauðgarar nauðgi“ við börnin sín og eigi þess í stað samtalið „ekki nauðga“.
„Hildarnar“ leggja til að allar útihátíðir, samkomur og viðburðir lifi eftir hugmyndafræðinni: ef einhver tilkynnir kynferðisofbeldi verður hátíðinni lokað því þau hafa sannað að þau geti ekki staðið undir gæslu.
„Hildarnar“ leggja til að fólk skipti út orðinu „límmiði“ fyrir „skírlífisbrók“ eða „buxur í stað pils“ til að sjá vandamálið.
„Hildarnar“ minna á að í heimi þar sem límmiðar ráða ríkjum eru konur spurðar: „varstu ekki örugglega með límmiða?“
„Hildarnar“ minna á að þetta tekur ábyrgð að hluta af gerandanum og færir á herðar þolandans.
„Hildarnar“ hafa margar hverjar orðið fyrir kynferðisofbeldi og vita að gerandinn er sjaldnast ókunnugur heldur vinur. Vinur þarf bara að rétta þér drykk. Límmiðinn bjargar þar engu.
„Hildarnar“ vita að jafnvel þó límmiði, skírlífsbrók, piparsprey, naglalakk og klakar gætu bjargað konu A mun það ekki bjarga konu B. Nauðgarar nauðga.
„Hildarnar“ vilja að þú sért örugg. Ekki næstum örugg.
Og síðast en ekki síst: „Hildarnar“ eru með þér í liði. Ekki næstum, ekki kannski, ekki til að rétta þér límmiða. Heldur alltaf.
Athugasemdir