Íslendingar kjósa sér forseta í dag og full ástæða er til að hvetja fólk til að nýta kosningarétt sinn. En í furðu mörgum löndum er enn við lýði það ævaforna fyrirkomulag að þjóðhöfðinginn sé fæddur til valda - þótt raunar séu völd kónga eða drottninga í mörgum löndum orðin ansi lítil. En á fáeinum stöðum eru þeir þó enn einráðir að mestu.
Hér fer á eftir listi yfir kónga og drottningar heimsins, þótt raunar hafi þeir þjóðhöfðingjar ekki ævinlega titilinn kóngur, heldur stundum fursti eða prins eða soldán eða eitthvað þvíumlíkt.
Röð listans fer eftir lengd embættistíðar viðkomandi kóngs eða drottningar.
1. Rama IX kóngur í Taílandi
Öðru nafni Bhumibol Aduljadej. Hann hefur setið í embætti allra þjóðhöfðingja lengst, eða síðan 1946, og er orðinn 88 ára gamall.
2. Elísabet II drottning á Bretlandi og miklu víðar
Elísabet er sá konungborni þjóðhöfðingi sem á sér flesta þegna. Hún er ekki aðeins þjóðhöfðingi hins sameinaða konungsríkis Stóra-Bretlands og Norður-Írlands (sem hugsanlega kvarnast eitthvað úr á næstunni), heldur er hún líka þjóðhöfðingi í 15 öðrum sjálfstæðum ríkjum - sem öll eru náttúrlega fyrrum nýlendur Breta, sem af einhverjum ástæðum kjósa enn að hafa konungssamband við sína gömlu nýlenduherra.
Þessi ríki eru Kanada í Norður-Ameríku, Antigua & Barbúda, Bahama-eyjar, Barbados, Belís, Grenada, Jamaíka, St. Lucia, St.Vincent & Grenadíns og St. Kitts & Nevis í Mið-Ameríku, Ástralía, Nýja-Sjálandi, Salómons-eyjar, Papúa-Nýja Gínea og Túvalú í Eyjaálfu.
Elísabet hefur setið pikkföst í hásæti allra þessara ríkja síðan 1952. Hún er níræð en lætur engan bilbug á sér finna.
3. Bolkía soldán á Brunei
Hassanal Bolkía ríkir sem sannkallaður einræðisherra yfir smáríkinu Brunei á norðurhluta eyjarinnar Borneó, sem að öðru leyti tilheyrir Malasíu og Indónesíu. Bolkía er einn ríkasti maður heimsins, enda er Brunei auðugt af olíu.
Hann hefur setið á valdastóli síðan 1967 og verður sjötugur nú í júlí.
4. Kabús soldán í Óman
Kabús bin Saíd al Saíd er 75 ára einræðisherra yfir Óman. Hann hefur setið á valdastóli síðan 1970. Hann þykir furðu mildur og óspilltur þjóðhöfðingi miðað við ýmsa stallbræður hans.
5. Margrét II drottning Danmerkur
Margrét Þórhildur er í fimmta sæti yfir þá konungsbornu þjóðhöfðingja sem lengst hafa setið. Hún tók að Friðriki IX föður sínum látnum árið 1972 þegar hún var 31s árs. Nú er hún 76 ára og úr því reykingunum hefur ekki tekist að drepa hana enn, þá verður hún ugglaust allra kerlinga elst.
6. Karl XVI Gústaf konungur Svíþjóðar
Hann tók við af Gústaf VI Adólf afa sínum árið 1973, en faðir hans Gústaf Adólf krónprins hafði dáið í flugslysi 1947 þegar Karl var aðeins eins árs. Karl var 27 ára þegar hann tók við konungdómi en er nú sjötugur og eftir ýmisskonar vesin á kóngi ku Svíar orðnir nokkuð þreyttir á honum, og bíða þess spenntir að Viktoría dóttir hans verði drottning.
7. Msvatí III konungur í Svasílandi
Svasíland er lítil land umlukt Suður-Afríku að mestu, en hefur þó landamæri að Mósambík líka. Ekki skorti kandídata á konungsstól þegar Sóbúsa II konungur dó árið 1982. Sóbúsa hafði þá setið á konungsstóli frá því hann var fjögurra mánaða gamall og faðir hans gekk of hart fram í dansi og dó. Sóbúsa átti einhvers staðar á bilinu 70-125 konur á sinni 82ja ára stjórnartíð og eignaðist um 200 börn.
Fyrir valinu sem arftaki varð hinn 14 ára Msvatí en hann tók formlega við þegar hann varð myndugur árið 1986.
Msvatí er ekki hálfdrættingur á við föður sinn í kvennafari því hann á ekki nema 15 konur og hefur enn sem komið er aðeins eignast 30 börn. En hann er náttúrlega aðeins 48 ára.
8. Akihító Japanskeisari
Hann tók við af föður sínum Híróhító árið 1989 þegar hann var 56 ára. Hann er nú 82ja ára.
9. Hans-Adam II prins í Liechtenstein
Oftast er talað um Liechenstein sem furstadæmi en opinber titill þjóðhöfðingjans er þó prins. Hann fæddist árið 1945 og var 44ja ára þegar hann tók við af föður sínum Frans Jósef II árið 1989. Hann er nú 71s árs og Alois sonur hans sér að mestu um þjóðhöfðingjaskyldurnar.
10. Haraldur V Noregskóngur
Hann tók við af Ólafi V föður sínum árið 1991. Þá var Haraldur 54ja ára, en verður áttræður á næsta ári. Um Harald er fátt að segja og er það vel. Sé eitthvað af kóngafólki að frétta snýst það venjulega um skandala, rugl og vitleysu.
11. Letsí III kóngur í Lesótó
Lesótó er umlukt Suður-Afríku á alla vegu. Kóngurinn þar er ekki einráður eins og í Svasílandi, heldur eru völd hans fyrst og fremst táknræn. Letsí tók nauðugur við 1990 þegar umdeildur faðir hans var neyddur í útlegð en faðirinn tók aftur við 1995. Hann dó hins vegar í bílslysi ári seinna og yfirleitt er miðað við árið 1996 þegar embættistíð Letsí III er reiknuð.
Letsí er fæddur 1963 og er því 52ja ára. Ekki tíðkast fjölkvæni kóngsins í Lesótó eins og í Svasílandi og á Letsí III eina konu og þrjú börn.
12. Abdúlla II kóngur í Jórdaníu
Abdúlla tók við af Hussein föður sínum árið 1999. Hann var þá 38 ára en er nú 54ja. Ranía heitir drottning hans af palestínsku foreldri. Abdúlla er mjög valdamikill sem kóngur en þó ekki einvaldur.
13. Hamad kóngur í Bahrein
Hamad kallaðist raunar emír þegar hann tók við einræðisvöldum í hinu olíuauðuga smáríki Bahrein við Persaflóa árið 1999 en þrem árum síðar fannst honum hæfa að taka sér konungsnafn.
Hamad á fjórar konur eins og heimilt ku vera samkvæmt Kóraninum og hefur gert þeim tólf börn. Einn af sonum hans dó í bílslysi 2006 þegar bíll sem hann ók á ofsahraða þeyttist út af þjóðvegi og rakst af miklu afli á skilti með fallegri mynd af föður hans.
Prinsinn var 14 ára.
Hamad kóngur er nú 66 ára.
14. Múhameð VI kóngur í Marokkó
Árið 1999 var gott ár fyrir endurnýjun í hásætum, því auk Jórdaníu og Bahrein mætti nýr kóngur til starfa í Marokkó. Múhameð VI tók þá við af Hussein II föður sínum.
Múhameð tókst að mestu - en þó ekki alveg - að sigla milli skers og báru í þeirri mótmælaöldu sem gekk yfir Arabalönd fyrir nokkrum árum. Hann er ekki einvaldur, en þó giska valdamikill. Hann á eina konu og tvö börn.
15. Hinrik stórhertogi af Lúxembúrg
Hinrik tók árið 2000 við af Jóni (Jean) föður sínum, sem sagði af sér, enda orðinn 79 ára. Jón er reyndar enn á lífi, orðinn 95 ára gamall.
Þegar Hinrik tók við var hann 45 ára en er nú 61s. Hann er kvæntur auðmannsdóttur frá Kúbu en fjölskylda hennar flúði land með fé sitt allt þegar kommúnistar tóku völdin 1959.
16. Norodom Sihamoni konungur í Kambódíu
Faðir hans, Norodom Sikanouk, varð kóngur í Kambódíu 1940, nítján ára gamall. Hann sagði um tíma af sér til að gerast forsætisráðherra en varð svo aftur konungur til 1970, þegar honum var steypt af stóli af herforingjum. Hann lét sig hafa að verða um tíma þjóðhöfðingi í hryllingsríki Rauðu khmeranna, en var síðar hnepptur í stofufangelsi af þeim. Árið 1993 var svo konungdæmið endurreist og Sihanouk varð kóngur að nýju og gegndi embættinu til 2004 þegar hann sagði af sér.
Þá varð 51s árs gamall sonur hans konungur. Sihamoni er að mestu uppalinn í Prag og á sér fjölbreytilegan feril að baki. Hann lærði til dæmis kvikmyndagerð um tíma - en í Norður-Kóreu af öllum stöðum. Síðar bjó hann lengi í París og kenndi ballett.
Já, ballett.
17. Khalifa forseti í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Þótt Khalifa bin Zayed Al Nahyan beri titilinn forseti er hann í raun konungur Sameinuðu arabísku furstadæmanna í krafti þess að vera emír í öflugasta furstadæminu, Abú Dabí. Hann tók við af föður sínum árið 2004 en hafði þá í meira en áratug ráðið ríkjum í raun, þar eð karl faðir hans var úr heimi hallur vegna veikinda. Khalifa er 68 og veit ekki aura sinna tal.
18. Albert II fursti af Mónakó
Faðir hans var Rainier fursti af Grimaldi-ættinni sem dó 2005 og þá tók Albert við. Móðir hans var bandaríska kvikmyndastjarnan Grace Kelly sem lést í bílslysi 1982 eins og eilíflega mun brennt verða inn í minni hvers manns.
Systur á Albert tvær. Sú eldri heitir Karólína og var fræg á sínum tíma fyrir að leggja sig lag við ýmsa kvennabósa svokallaða, en hún komst loks í heila höfn síns þriðja hjónaband er hún gekk að eiga Ernst August Albert Paul Otto Rupprecht Oskar Berthold Friedrich-Ferdinand Christian-Ludwig Prinz von Hannover Herzog zu Braunschweig und Lüneburg Königlicher Prinz von Großbritannien und Irland.
Eftir því sem næst verður komist mun Karólína þó aðeins ávarpa eiginmanninn sem Ernst.
Eiga þau hjón þrjú börn.
Yngri systir Alberts heitir Stefanía og reyndi fyrir sér sem poppstjarna um tíma, sjá þessa óbrotgjörnu snilld hér. Stefanía á enn litríkari karlasögu að baki en Karólína og bjó um tíma með fílahirði í hjólhýsi fjölleikahúss. En auðvitað býr hún þó núorðið við ríkidæmi eins og sæmir kóngafólki!
Albert eignaðist nokkur börn áður en hann gifti sig, en þrætti jafnan fyrir þau, enda er hann ómerkilegur maður. Með DNA-rannsóknum tókst þó tvívegis að knýja hann til að horfast í augu við ábyrgð sína.
Hann gekk í hjónaband 2011. Kona hans er suðurafrísk sundkona að nafni Charlene Wittstock. Sagt er að henni hafi snúist hugur rétt fyrir brúðkaupið og ætlað að leggja á flótta úr furstadæminu en lögreglan gómað hana á landamærunum, og svo hafi tekist með harmkvælum að sannfæra hana um að halda brúðkaupinu til streitu. Var síðan haldið upp á hjónabandið með gleðilátum miklum að viðstöddum Ólafi Ragnari Grímssyni. Brúðurin mun ekki hafa þótt ofsakát, en þau furstahjón eignuðust þó tvíbura árið 2014.
19. Saba IV emír af Kúveit
Hann tók við embætti árið 2006. Þá lést bróðir hans sem verið hafði emír. Annar bróðir tók þá reyndar fyrst við, en valdaættin neyddi hann til að segja af sér eftir nokkra daga þegar uppgötvaðist að hann kunni ekki lengur að tala. Var hann þá orðinn svo illa þjakaður af Alzheimer. Þá tók Saba IV við. Ekki er unnt að segja að Kúveitar hafi hrifist af æskuþrótti síns nýja kóngs enda var hann þá 77 ára og nálgast nú óðum nírætt.
Saba á nokkra syni en það er þó tæplega áttræður hálfbróðir hans sem er krónprins landsins og mun því taka við af honum.
Mælt er að eftir á að hyggja þyki ekki öllum þeim, sem fórnuðu lífi sínu í stríðinu eftir innrás Íraks í Kúveit 1990, að ástæða hafi verið til að deyja svo koma mætti ætt þessari á valdastóla að nýju.
20. Nigme Khesar Namgyel konungur í Bútan
Hann fæddist árið 1980 og er sonur fyrri kóngs og þriðju eiginkonu hans, en faðir hans - Jigme - á fjórar eiginkonur - þótt búddisti sé hann en ekki múslimi. Jigme tók við konungdómi 1972, aðeins 17 ára gamall, og mun hafa staðið fyrir margvíslegum umbótum í landi sínu sem er smáríki í Himalaja-fjöllum. Árið 2006 sagði Jigme af sér og þá tók Nigme Khesar við.
Formlega bera Bútan-kóngar hinn hljómfagra titil Drekakóngur.
21. Abdul Halim konungur Malasíu
Árið 2011 tók Almu'tasimu Billahi Muhibbuddin Tuanku Alhaj Abdul Halim Mu'adzam Shah Ibni Almarhum Sultan Badlishah eða Abdul Halim við konungdómi í Malasíu. Hann var þá 84ja ára.
Í Malasíu gildir sú óvenjulega skipun að kóngurinn er kosinn til fimm ára í senn úr hópi þeirra konungbornu leiðtoga sem stýra þeim ríkjum er mynda sambandsríkið Malasíu.
Abdul Halim hafði áður verið yfirkóngur Malasíu 1970-1975 og er sá fyrsti sem gegnir þessu tignarembætti tvisvar. Hann hefur verið soldán í Kedan-ríki á Malajaskaga frá 1958.
22. Tupou VI kóngur í Tonga
Tonga er eyríki í Kyrrahafi, ekki nema 748 ferkílómetrar alls og þar búa 103.000 manns. Þar hafa ríkt kóngar frá aldaöðli og þótt landið kæmist undir ægishjálm breska heimsveldisins sátu kóngarnir áfram og hafa verið þjóðhöfðingjar frá landið fékk sjálfstæði 1970.
Tupou er fæddur 1959 og varð kóngur 2012 þegar bróðir hans kóngurinn dó án þess að eiga nema eina óskilgetna dóttur.
23. Vilhjálmur Alexander konungur Hollands
Ekki trúi ég að margir þekki til Vilhjálms Alexanders enda hefur hann látið lítið fyrir sér fara síðan hann tók við konungdómi 2013 eftir að móðir hans, Beatrix, sagði af sér af því hún nennti ekki því vesini að vera Hollandsdrotting.
Vilhjálmur Alexander fæddist 1967 og er því að verða fimmtugur. Kona hans heitir Máxima og er argentínsk dóttir háttsetts embættismanns í herforingjastjórninni illræmdu kringum 1980. Er hún gekk að eiga Hollandsprins fengu foreldrar Máximu ekki að vera viðstödd, vegna fortíðar föður hennar.
Þau hjón eiga þrjár dætur og sú elsta þeirra, Katrín Amalía, verður drottning þegar faðir hennar verður þreyttur á hásætinu eða deyr.
Hún er fædd 2003 og er því enn aðeins 13 ára.
24. Tamím bin Hamad al Thani, emír í Katar
Allir Íslendingar þekkja væntanlega eftirnafn emírsins, en Al Thani-ættin er fjölmenn, rík og mestanpart gjörspillt. Emírinn sjálfur þykir vera með skárri laukum þessarar ættar. Hann hefur fylgt þeirri stefnu föður síns að hafa vinsamleg samskipti við Vesturlönd en þykir líka hallur undir Múslimska bræðralagið í sumu.
Hann tók við völdum 33ja ára árið 2013. Hann er nú yngsti kóngur í heimi. Hann á þrjár eiginkonur og einhvern slatta af börnum sem betur fer, enda lífsnauðsynlegt að fjölga enn í Al Thani-fjölskyldunni.
25. Filippus Belgíukóngur
Líkt og raunin er um nágrannakónginn í Hollandi, þá munu líklega fáir þekkja til Belgíukóngs. Hann tók við 2013 þegar Albert II faðir hans lét af embætti af heilsufarsástæðum að sagt var.
Kona hans og drottning heitir Matthildur og er af aðalsættum í Belgíu með töluvert pólskt blóð í æðum.
Filippus er 56 ára. Hann og Matthildur eiga nokkur börn og er elst Elísabet krónprinsessa sem fæddist 2001.
26. Filippus VI Spánarkóngur
Annar Filippus er næstnýjasti kóngur heimsins, hann tók við embætti 2014 þegar faðir hans, Jóhann Karl, hálfpartinn datt úr hásætinu þegar ýmsar hneykslisblikur voru á lofti yfir honum.
Filippus fæddist 1968 og er því 48 ára. Hann gat sér gott orð fyrir leikni í siglingum á yngri árum, hann keppti meira að segja á ólympíuleikunum í Barcelona 1992 í siglingum og náði sjötta sæti ásamt félögum sínum.
Kona hans heitir Letisía og er af alþýðufólki á Spáni, faðir hennar er blaðamaður og móðirin hjúkrunarfræðingur.
27. Salman kóngur í Sádi-Arabíu
Nýjasti kóngur kóngsins tók við völdum í janúar í fyrra, 2015.
Það er Salman kóngur í Sádi-Arabíu.
Ekki var hann þó neitt unglamb er hann settist í hásætið, eða 79 ára.
Salman er einn af endalausri röð sona sem Abdulaziz stofnandi Sádi-Arabíu átti. Þar hefur hver bróðirinn tekið við af öðrum síðustu áratugi eftir því sem ellinn hefur lagt að velli æ fleiri.
Athugasemdir