Hjásögu má kalla það þegar menn velta fyrir sér „hvað ef“ sögu. Skoða sem sé það sem hefði getað gerst, en ekki það sem gerðist í raun og veru.
Hvað hefði breyst í sögunni ef þetta hefði gerst en ekki hitt. Hefði kannski akkúrat ekkert breyst?
Þegar ég horfði á Bjarna Benediktsson forsætisráðherra lýsa því yfir að aðfinnslur um hina „gleymdu“ skýrslu hans um aflandseyjaskjólið væru „hlægilegar“ þá datt mér í hug eftirfarandi hjásaga:
Ef flokkarnir fimm sem tvívegis stóðu í stjórnarmyndunarviðræðum eftir kosningar í október hefðu borið gæfu til að mynda þá stjórn sem virtist stundum svo skammt í, hverju hefði það breytt?
Jú, við værum þá með forsætisráðherra sem kann mannasiði, sýnir pólitískum andstæðingum sínum virðingu og hefur áhuga á kjörum almennings í landinu, ekki einungis hvernig ríka fólkið hefur það, og sægreifarnir.
Við værum með Vinstri græna sem hryggjarstykki í stjórninni og þar sem fólk sem hefði raunverulegan áhuga á að bæta og jafna kjör, og endurreisa velferðarkerfið fyrir almenning.
Við værum með Samfylkinguna, vissulega laskaða, en myndi þó gegna sínu hlutverki við slíkt hið sama, og í leiðinni vænti ég einnig að passa upp á að frjálslyndis væri áreiðanlega gætt í hvívetna.
Við værum með Pírata að leiða vinnu við að endurræsa það í samfélaginu sem orðið er staðnað, það væri búið að taka stjórnarskrána upp úr skúffu og raunverulegar umræður hafnar um hvernig ætti að ganga frá því plaggi.
Við værum með Viðreisn í óða önn að skipuleggja hvernig Ísland geti komið sér upp nýrri mynt og kanna hvað sé til Evrópu að sækja næstu misserin.
Við værum með hugmyndaríku elementin úr Bjartri framtíð á útopnu, vonandi.
Við værum með líf, fjör og vonir um heilbrigðar breytingar.
Við værum með nýjar hugmyndir.
Í staðinn erum við með steindauða og óvinsæla stjórn sem meðvitað og markvisst hefur það eina hlutverk að vernda ríka fólkið á Íslandi.
Og er þegar orðin eins og nátttröll.
Við erum með afturhaldsstjórn en frjálslyndu öflin í Viðreisn eiga að una sér við að redda brennivíni í búðir.
Við erum með trénaða, fúna ríkisstjórn sem mun skrimta út á það eitt að gæta hagsmuna þeirra ríku.
Enda nýtur stjórnin hvergi vinsælda nema hjá ríkum karlmönnum, sjá hér.
Engin spilling verður upprætt meðan þessi stjórn fer með völd, látið ykkur ekki dreyma um það.
Og við erum með ósannsögulan og óheiðarlegan og hrokafullan forsætisráðherra.
Jahérna.
Ég held að þeir sem komu í veg fyrir að fimm flokka stjórnin kæmist á laggirnar ættu bara að skammast sín.
Hún hefði virkilega breytt einhverju.
Athugasemdir