Búsáhaldabyltingin fór fram undir taktföstu söngli.
„Vanhæf ríkisstjórn, vanhæf ríkisstjórn.“
Það voru orð að sönnu, ríkisstjórn Geirs Haarde var sannarlega vanhæf til að takast á við eftirköst hrunsins.
Áðan var ég á Austurvelli að mótmæla því grímulausa ofbeldi sem felst í því að ríkisstjórnarflokkarnir ætla að hunsa vilja fólks um nýjar kosningar.
Svo fórum við upp að húsi Framsóknarflokksins, síðan að Valhöll.
Og á þessari leið heyrði ég nýjan baráttusöng apríl-mótmælanna:
„Burt með bófana - alla ríkisstjórnina!“
Nú snýst málið ekki um vanhæfni, heldur bófa.
Ég tek heils hugar undir þennan nýja söng.
Þið ættuð að prófa hann.
Hann er furðu sönghæfur.
Og vonandi hljómar hann þangað til þessari svívirðu lýkur.
Athugasemdir