Er Íslendingum - eða réttara sagt hluta þjóðarinnar - alveg sama þó það sé logið að þeim? Finnst það bara fínt og rétt að verðlauna þá sem mest ljúga með því að kjósa þá í æðstu embætti landsins?
Ólafur Ragnar Grímsson hugðist bjóða sig fram til forseta í sjötta sinn. Hann sagði þá að hér í samfélaginu ríkti slík óvissa að engum væri treystandi nema honum til að stýra þjóðinni gegnum öldurótið.
Og hann sagði nánast fullum fetum að fólkið sem fór út á götu að mótmæla spilltri og vanhæfri ríkisstjórn hefði verið að kalla eftir áframhaldandi slímsetu hans á Bessastöðum.
Hvort tveggja var bara lygi og allir vissu það.
Hann gat bara ekki hugsað sér að láta af embætti.
Þrátt fyrir þessa augljósu lygi gat fullt af fólki greinilega hugsað sér að kjósa hann.
Í gær boðaði hann svo að hann myndi - þrátt fyrir allt - sennilega ekki bjóða sig fram.
Skýringin væri sú að komnir væru fram tveir hæfir frambjóðendur sem hann gæti treyst til að stýra þjóðinni, blabla.
Þetta var líka lygi.
Hann var bara orðinn smeykur um að Davíð Oddsson tæki frá honum svo mikið fylgi að hann taldi sig ekki lengur öruggan með endurkjör.
Af hverju gat maðurinn ekki sagt satt?
Og Davíð - nánast í fyrstu setningu í hinu undarlega viðtali við Pál Magnússon byrjaði hann að ljúga.
Þegar hann sagðist ekkert hafa farið að hugsa um forsetaframboð fyrr en fyrir örfáum dögum.
Það er lygi. Og allir vita það.
Davíð Oddsson er búinn að hugsa um forsetaframboð mjög, mjög lengi.
Og það hefur verið í undirbúningi mánuðum saman.
Kannanir hafa verið gerðar, grunnurinn rannsakaður, Hannes skrifaði greinina góðu þar sem Davíð skapaði eplin.
Þrátt fyrir að byrja strax að ljúga, þá munu svo og svo margir nú endilega vilja kjósa Davíð sem forseta.
Af hverju?
Finnst okkur virkilega allt í lagi að æðstu ráðamenn ljúgi að okkur? Og sumum finnist það meira að segja frábært dæmi um kænsku og sniðugheit?
Jaseisei, sagði hún amma mín.
(Svo er annað sem Páll Magnússon mætti íhuga. Fyrir einhverju síðan hefði sá knái fréttahaukur ekki látið bjóða sér svo augljósa lygi í fyrstu setningu á fyrsta viðtalinu á nýjum stað. Af hverju lét hann bjóða sér það núna?)
Athugasemdir