Þegar Norðurlöndin runnu saman: Margrét drottning og slagurinn í Åsle
Þann 24. febrúar 1389 mættust herir tveir gráir fyrir járnum skammt utan við smáþorpið Åsle í suðurhluta Svíþjóðar, þetta var á mýrlendu svæði milli stóru vatnanna Vättern og Vänern, ekki langt frá Jönköping. Um það bil þúsund dátar voru í hvorum her og fór sjálfur konungurinn yfir Svíaríki fyrir öðrum þeirra, hans tign Albrekt af Meklenbúrg. Hann var fyrst og fremst þýskur hertogasonur en hafði verið valinn konungur Svía þegar hásætið var um stund laust þar í landi 1364.