Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Sögulegar kosningar í vændum

Á morg­un geng­ur þjóð­in til al­þing­is­kosn­inga í 22. sinn. Kosn­ing­um var flýtt í kjöl­far mót­mæla eft­ir að Pana­maskjöl­in leiddu í ljós að þrír ráð­herr­ar í rík­is­stjórn Ís­lands hefðu átt fé­lög í skatta­skjól­um. Tólf flokk­ar eru í fram­boði og mið­að við fylgi flokka sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um er ólík­legt að tveir flokk­ar nái að mynda rík­is­stjórn. Sjald­an hef­ur því ver­ið jafn erfitt að spá fyr­ir um mögu­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf og nú. Allt stefn­ir í sögu­leg kosn­inga­úr­slit.

Skoðanakannanir benda til þess að tveir stærstu flokkarnir eftir kosningar verði Sjálfstæðisflokkur og Píratar. Samkvæmt nýrri könnun MMR mælist Sjálfstæðisflokkurinn nú með 24,7 prósenta fylgi, og bæta töluvert við sig frá síðustu könnun, en Píratar eru næststærstir með 20,5 prósenta fylgi. Líkur eru á að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, muni því veita öðrum hvorum flokknum stjórnarmyndunarumboð, en hins vegar verður að teljast nánast óhugsandi að flokkarnir myndi saman ríkisstjórn. Í svari við spurningu Stundarinnar um hvaða flokki hann sæi síst fyrir sér samstarf í ríkisstjórn nefnir Smári McCarthy, oddviti Pírata í Suðurkjördæmi, til að mynda Sjálfstæðisflokkinn. 

Miðað við fylgi í skoðanakönnunum mun hinn ríkisstjórnarflokkurinn, Framsóknarflokkurinn, bíða afhroð í kosningunum, á sjálfu hundrað ára afmælisári flokksins. Framsókn hlaut mikinn kosningasigur í síðustu kosningum, fékk 24,4 prósent greiddra atkvæða, en mælist einungis með 11,4 prósenta fylgi í dag. Samkvæmt skoðanakönnunum er ríkisstjórnin því fallin.  

Könnun MMR
Könnun MMR

Tilraunir til að mynda kosningabandalög

Píratar héldu blaðamannafund um þarsíðustu helgi þar sem þeir greindu frá því að þeir hefðu sent erindi á formenn stjórnarandstöðuflokkanna, og Viðreisn, um að hefja stjórnarmyndunarviðræður fyrir kosningar. Þannig væri hægt að kynna niðurstöður viðræðnanna, og málamyndanir, fyrir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár