Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Sindri hefur ekki upplifað fordóma: „Tabú ekki lengur til staðar“

Sindri Sindras­son seg­ist ekki hafa upp­lif­að for­dóma í ís­lensku sam­fé­lagi þrátt fyr­ir að vera hluti af minni­hluta­hóp­um, með­al ann­ars vegna þess að hann er gift­ur hálf­dönsk­um manni og eiga þeir sam­an ætt­leitt barn sem er hálf­ma­kedónskt og hálf­ís­lenskt.

Sindri hefur ekki upplifað fordóma: „Tabú ekki lengur til staðar“

„Mér finnst íslenskt samfélag hálf fordómalaust,“ segir Sindri Sindrason, fréttaþulur Stöðvar 2. Hann segist upplifa að tabú séu ekki lengur til staðar í íslensku samfélagi, hann hafi ekki upplifað fordóma þrátt fyrir að vera hluti af minnihlutahópum, sem hann taldi upp í viðtali við Töru Margréti Vilhjálmsdóttur, formann Samtaka um líkamsvirðingu, á mánudaginn.

Tara skrifar í pistli að hún upplifi að Sindri hafi brotið á sér í viðtali fréttartíma Stöðvar 2 og segist horfa allt öðruvísi á fjölmiðla í kjölfarið.

Fordómar innra með okkur

Aðdragandinn er að Sindri, sem er fréttaþulur á Stöð 2, lét umdeild orð falla í viðtali við Töru Margréti. Hann spurði hvort fordómar væru „within“ eða inni í okkur sjálfum. Tara Margrét svaraði að þetta væri í rauninni talað úr munni einhvers sem hefði forréttindastöðu og að hann þyrfti að hafa upplifað fordómana í raun og veru til að skilja þetta. Sindri brást hvass við. „Veistu hvað ég er í mörgum minnihlutahópum? Ég er hommi, ég á litað barn, það er ættleitt, ég er fyrsti samkynhneigði maðurinn til að ættleiða á Ísland, ég er giftur útlendingi, eða hálfum útlendingi, þannig að við skulum ekki fara þangað.“

Maður Sindra er hálfdanskur og barn hans hálfíslenskt og hálfmakedónskt.

Sindri: „Mér finnst allir vera í eins konar jaðarhóp“

Aðspurður hvort Sindri og fjölskylda hans hafi fundið fyrir fordómum í samfélaginu svarar Sindri neitandi. „Við erum náttúrlega í jaðarhópi. Mér finnst allir vera í eins konar jaðarhópi, mér finnst allir vera pínulítið öðruvísi. Maður upplifir allt svolítið í gegnum börnin sín þar eru bara alls konar fjölskylduform og það kippir sér aldrei neinn upp við það þó að einhver sé pínu öðruvísi en hann sjálfur. Mér finnst íslenskt samfélag hálf fordómalaust. Mér finnst allir vera frekar jákvæðir og opnir gagnvart náunganum. Þó að það sé að sjálfsögðu undantekningarnar sem sanna regluna. Kannski er ég bara svona blindur á fordómana. Við erum alltaf að leggja áherslu á að virðingin, sjálfsvirðingin komi að innan, við tölum við börnin okkar að það skipti ekki máli hvað öðrum finnst ef okkur líður vel. Ég barðist með það að koma út úr skápnum í sjö ár því ég var svo hræddur um hvað fólk myndi segja því ég var ekkert sáttur með þetta á tímabili. Svo kom ég út og öllum var svo slétt sama. Þess vegna hef ég þessa tilfinningu að þetta sé bara ég. Þegar ég er í ættleiðingaferlinu og í fyrsta skipti sem ég fer með hana á leikskóla þá er maður svona hvað finnst fólki, þegar hún kallar á eftir okkur báðum pabbi og hleypur kannski til okkar beggja í Bónus. Fyrst pældi ég mikið í því en fólk kippir sér ekkert upp við það,“ segir Sindri.  

Stendur með svari sínu

Tara segist ekki sjá eftir svari sínu. „Ég mun standa með þessu svari mínu fram í rauðan dauðann. Fyrir utan það að ég upplifði að brotið hefði verið á mér í beinni þegar hann kom mér algjörlega í opna skjöldu með þessar viðbótarspurningar sínar var ég í fullum rétti til að álykta að þetta kæmi beint frá honum sem persónu en ekki sem hlutlausum fréttaþuli,“ skrifar Tara Margrét. Hún gagnrýnir Sindra harðlega fyrir að hafa blandað eigin persónu í viðtalið.

Í samtali við Stundina svarar Sindri ásökunum og segir: „Ég vil koma því að, mér finnst mjög leiðinlegt ef henni hafi fundist ég ráðast á sig en ef maður horfir á viðtalið þá er það náttúrlega ekki þannig,“ og bætir við: „Þetta er svo mikill stormur í vatnsglasi. En hún er náttúrlega formaður hagsmunahóps og á að geta svarað þeim spurningum sem koma fram.“

Tara upplifir að brotið hafi verið á henni í beinni

Tara skrifar að Sindri hafi dregið sig sjálfur inn í umræðuna með orðalaginu „svo velti ég öðru fyrir mér og örugglega margir aðrir“. Hún segir mikilvægt að fjölmiðlamenn blandi sér ekki persónulega inn í málin þar sem þeir séu á heimavelli og í valdastöðu gagnvart viðmælanda og upplifir að brotið hafi verið á sér. „Ég horfi allt öðruvísi á fjölmiðla eftir það sem kom í kjölfarið. Ég er svo skaðbrennd af þessari reynslu að ef að brunasárin væru líkamleg lægi ég á gjörgæslu.“

„Ég er svo skaðbrennd af þessari reynslu að ef að brunasárin væru líkamleg lægi ég á gjörgæslu.“

Í samtali við Stundina segir Sindri. „Ég hef verið í fjölmiðlum í 13 ár og held ég hafi aldrei dregið mig svona áður inn. Ég segi samt við hana: ertu að meina mig og hún sagði „já“, hún var ekki að tala almennt heldur benti á mig. Annars hefði ég ekki gert það en ég held að viðbrögðin hafi verið miklu meiri en tilefni var til. Ég er ekki að gera lítið úr því að hún finni fyrir fordómum og að það hljómi þannig. Mér finnst líka leiðinleg sú gagnrýni sem hún hefur fengið á sig á kommentakerfunum því ég veit alveg að hún er að vinna gott starf.“ 

Jaðarsetning innan samfélagslegs kerfis

Í pistlinum skrifar Tara að mikil vitundavakning hafi orðið meðal jaðarhópa á ráðstefnunni Truflandi. „Á ráðstefnunni sameinuðumst við, við valdefldumst og lærðum mikið. Við horfðumst í augu við eigin jaðarsetningu og forréttindi sem við öll höfum fram yfir hvort annað. Það sem Lydia, aðalfyrirlesari ráðstefnunnar kenndi okkur var einmitt að horfast í augu við það að jaðarsetningin sem við verðum fyrir er ekki rakin til einhvers innra með okkur eða einhvers sem sést utan á okkur. Jaðarsetningin er tilkomin vegna þess samfélagslega kerfis sem hefur skapast, þar sem einn hópur er talinn meira virði en einhver annar. Það er samfélagslega viðurkenndara að vera ófatlaður en fatlaður, hvítur en svartur, gagnkynhneigður en hinsegin og grannur en feitur. Þannig verður til flókið mynstur forréttinda og jaðarsetningar sem við höfum hvert og eitt.“

„Tabúin ekki lengur til staðar“

Í viðtalinu svaraði Sindri Töru því að hann væri í mörgum minnihlutahópum þar sem hann væri giftur útlenskum manni og ættu þeir litað ættleitt barn.  „Maðurinn minn er reyndar hálfdanskur. Barnið okkar er hálf-makedónskt og hálf-íslenskt. Ég hef ekki fundið fyrir fordómum, ég vinn í fjölmiðlum, ég kynnist fullt af fólki,og mín upplifun er sú að tabúin séu ekki lengur til staðar vegna þess að við erum svo opin fyrir því að tala um hlutina. Maðurinn minn er verkfræðingur sem er mjög karllægur geiri og hann hefur heldur ekki fundið fyrir fordómum.“ 

Tara segist vona að umræðan fái fólk til að líta í eigin barm og skoða hvernig forréttindi birtist í daglegu lífi. „Eftir viðtalið og eftir því sem ég hef verið að púsla allri þessari reynslu saman hef ég komist að ákveðinni niðurstöðu. Hún er að samfélagið vill að við sem erum einhvern öðruvísi og tilheyrum jaðarsettum hópum tökum ábyrgðina á því á okkur sjálf, ef ekki að öllu leyti að þá allavega að hluta til. Það er svo sterkt kveðin vísa að veik staða okkur sé okkur sjálfum að kenna að við höfum langflest innrætt það með okkur. Þess vegna er hann [Sindri] vanur að fá þetta svar. Þegar ég neitaði að gefa honum það braut ég þessa samfélagslegu reglu um að ég, sem jaðarsett manneskja skyldi bara halda mig á mottunni, og ekki rugga bátnum. Vegna þess að með því að gera slíkt ógnum við fyrirliggjandi valdakerfi og fyrir þá sem hafa völdin er það eðlilega mjög ógnvekjandi.“

Hér má sjá viðtal Sindra við Töru. Samtalið sem hér er rætt um byrjar á 6:45 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Kaup Kviku á Ortus: Kjartan hagnaðist um nærri 200 milljónir sama ár
2
Fréttir

Kaup Kviku á Ort­us: Kjart­an hagn­að­ist um nærri 200 millj­ón­ir sama ár

Einn af þeim al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið Kvika keypti hluta­bréf í breska veð­lána­fyr­ir­tæk­inu Ort­us af ár­ið 2022 var fé­lag í eigu fjár­fest­is­ins Kjart­ans Gunn­ars­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Ár­mann Þor­valds­son, þá­ver­andi að­stoð­ar­for­stjóri Kviku og nú­ver­andi for­stjóri, eru við­skipta­fé­lag­ar og áttu með­al ann­ars báð­ir hluta­bréf í Ort­us á sama tíma.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Hand­bók um leið­ir til að þykj­ast sið­leg­ur ráð­herra

Á Ís­landi er við lýði reglu­verk sem á að koma í veg fyr­ir spill­ingu ráð­herra og auka traust á stjórn­sýslu. Ný­lega var gef­in út hand­bók með út­skýr­ing­um á regl­un­um með raun­hæf­um dæm­um. Raun­veru­leik­inn sýn­ir hins veg­ar að ráð­herr­ar láta þetta ekki hafa áhrif á hegð­un sína. Regl­urn­ar gilda bara þeg­ar það reyn­ir ekki á þær.
„Hætta á misferli“ – Alvarlegar athugasemdir KPMG við fjárreiður Blaðamannafélagsins
7
Fréttir

„Hætta á mis­ferli“ – Al­var­leg­ar at­huga­semd­ir KP­MG við fjár­reið­ur Blaða­manna­fé­lags­ins

Fyrr­ver­andi formað­ur og fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Ís­lands milli­færði end­ur­tek­ið á sig fyr­ir­fram­greidd laun sem hann end­ur­greiddi vaxta­laust allt að hálfu ári síð­ar, keypti tíu tölv­ur fyr­ir sig á níu ár­um og greiddi út styrki án sam­þykk­is stjórn­ar. KP­MG ger­ir at­huga­semd­ir við þetta í nýrri skýrslu sem unn­in var að beiðni stjórna BÍ. Hjálm­ar Jóns­son, sem sagt var upp hjá fé­lag­inu í árs­byrj­un, seg­ir þetta allt eiga sér eðli­leg­ar skýr­ing­ar.
Kostnaður við árshátíð fram úr skattfrelsi: „Ekki einhver trylltur glamúr“
8
Viðskipti

Kostn­að­ur við árs­há­tíð fram úr skatt­frelsi: „Ekki ein­hver tryllt­ur glamúr“

Kostn­að­ur á hvern starfs­mann við árs­há­tíð Lands­virkj­un­ar fór fram úr skatt­frjáls­um kostn­aði um 34 til 230 þús­und á mann, eft­ir því hvernig á það er lit­ið, og gæti starfs­fólk­ið því þurft að greiða skatt af þeim krón­um. Lands­virkj­un ætl­ar, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa, að fara að lög­um og regl­um um skatt­skil en gef­ur ekki uppi hvernig upp­gjör­inu er hátt­að gagn­vart starfs­fólk­inu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Verðmætin okkar felast líka í að nýta náttúruna“
6
FólkForsetakosningar 2024

„Verð­mæt­in okk­ar fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una“

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hafa sömu vök­ulu augu sem hún hef­ur haft sem orku­mála­stjóri og nýta þau, og rödd sína, með sterk­ari hætti í embætti for­seta. Halla Hrund er með stórt nátt­úru­hjarta en verð­mæt­in fel­ast líka í að nýta nátt­úr­una. „Fyr­ir mér felst þetta í jafn­vægi og virð­ingu í sam­skipt­um, við þurf­um ekki að deila svona mik­ið.“
Sakar nýjan matvælaráðherra um lygar
7
Fréttir

Sak­ar nýj­an mat­væla­ráð­herra um lyg­ar

Ólaf­ur Stephen­sen, Fram­kvæmda­stjóri Fé­lags at­vinnu­rek­anda, seg­ir að ný­skip­að­ur mat­væla­ráð­herra hafi sagt ósátt þeg­ar hún sagði að all­ir um­sagnar­að­il­ar hafi ver­ið kall­að­ir á fund at­vinnu­vega­nefnd­ar til að ræða frum­varp til breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um. Ólaf­ur seg­ir að Fé­lag at­vinnu­rek­anda hafi ekki feng­ið boð á fund áð­ur en um­deild­ar breyt­ing­ar á lög­un­um voru sam­þykkt­ar.
Jón Gnarr segir að ísraelskir landnemar í Palestínu þurfi að hypja sig
9
FréttirForsetakosningar 2024

Jón Gn­arr seg­ir að ísra­elsk­ir land­nem­ar í Palestínu þurfi að hypja sig

Jón Gn­arr lýs­ir yf­ir harðri and­stöðu við stríð­ið í Palestínu í ný­legu við­tali í hlað­varp­inu Vakt­inn. Hann vill taf­ar­laust vopna­hlé, póli­tíska end­ur­nýj­un í Ísra­el og að land­töku­byggð­ir Ísra­els í Palestínu verði lagð­ar nið­ur. „Það þarf bara að jafna þetta við jörðu og segja þessu liði að hypja sig.“
Það er búið að einkavæða hafið og færa örfáum á silfurfati
10
Allt af létta

Það er bú­ið að einka­væða haf­ið og færa ör­fá­um á silf­urfati

Kjart­an Páll Sveins­son, formað­ur Strand­veiði­fé­lags­ins, elsk­ar haf­ið út af líf­inu, eins og hann orð­ar það, og vill ekki að það sé tek­ið af hon­um eða öðr­um Ís­lend­ing­um. Hann seg­ir haf­ið hafa ver­ið tek­ið af þjóð­inni, einka­vætt og fært ör­fá­um á silf­urfati. Hann vill að strand­veiði fái stærri hluta úr pott­in­um og pott­ur­inn fyr­ir aðra en kvótakónga stækki.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
3
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
Nýjar ógnir blasa við Íslendingum
4
Úttekt

Nýj­ar ógn­ir blasa við Ís­lend­ing­um

Ís­land get­ur orð­ið skot­mark í styrj­öld sem veik­asti hlekk­ur­inn í varn­ar­keðju Vest­ur­landa. Don­ald Trump hafn­ar skuld­bind­ingu Banda­ríkj­anna til að verja NATO-ríki sem borga ekki sinn skerf, en Ís­land er lengst frá því af öll­um. Ingi­björg Sól­rún Gísla­dótt­ir, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráð­herra, seg­ir varn­ar­samn­ing­inn við Banda­rík­in hafa „af­skap­lega tak­mark­að gildi“.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Risar í landbúnaði orðnir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýnist
8
Rannsókn

Ris­ar í land­bún­aði orðn­ir að fríríki og geta stýrt verði eins og þeim sýn­ist

Laga­breyt­ing sem var fyr­ir einu og hálfu ári köll­uð „að­för að neyt­end­um“ var sam­þykkt á Al­þingi í lok síð­ustu viku með at­kvæð­um minni­hluta þing­manna. Um er að ræða af­nám á ólög­mætu sam­ráði stærstu land­bún­að­ar­fyr­ir­tækja lands­ins. Laga­breyt­ing­unni var laum­að inn í frum­varp á loka­metr­um af­greiðslu þess með mik­illi að­komu þeirra sem mest græða á henni.
Halla nú ósammála mörgu sem hún beitti sér fyrir sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
10
FréttirForsetakosningar 2024

Halla nú ósam­mála mörgu sem hún beitti sér fyr­ir sem fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs

Ár­ið 2007 mælti Halla Tóm­as­dótt­ir, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, fyr­ir breyt­ing­um til þess að Ís­land gæti orð­ið „best í heimi.“ Þar á með­al var að setja á flata og lága skatta, einka­væða há­skóla og heil­brigðis­kerfi, einka­væða nátt­úru­auð­lind­ir og stór­auka ensku­kennslu. Heim­ild­in kann­aði hver við­horf Höllu væru til mála­flokk­anna í dag.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu